Dagur aldraðra

Það var falleg og notaleg helgistund á sal Níunnar á uppstigningardag – á degi aldraðra. Salurinn var þéttskipaður fólki sem hlýddi á fallegan söng Yngri barnakórs Grunnskólans í Þorlákshöfn undir stjórn Sigþrúðar Harðardóttur og Gests Áskelssonar sem spilaði jafnframt undir sönginn. Séra Baldur Kristjánsson leiddi helgistundina og Guðmundur S. Brynjólfsson djákni predikaði.

Uppstigningardagur var gerður að alþjóðlegum degi eldri borgara fyrir u.þ.b. tveimur áratugum síðan. Prestur og djákni undirstrikuðu það, hvor á sinn hátt, að dagurinn í dag væri áminning um að treysta því sem í fljótu bragði virðist ekki geta staðist – upprisa Jesú Krists.

Similar Posts

  • Vorönnin á Níunni er hafin og segja má að starfið verði með nokkuð hefðbundnum hætti. Þeir hörðustu eru þegar byrjaðir, briddsararnir, karlarnir í karlarabbinu, leshópurinn og boccia fólkið en síðan tekur eitt við af öðru að venju Boccia verður í íþróttahúsinu á þriðjudögum kl. 10.30 og föstudögum kl. 11.00. Kortagerðin hefst 15. jan. klukkan 13.00….

  • Mikið um að vera á 9-unni

    Nemendur á miðstigi Grunnskólans í Þorlákshöfn komu 16. nóv. á Degi íslenskrar tungu og lásu ljóð og sungu svo fallega fyrir okkur. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna. Félagsfundur var 19. nóv. og mætti formaður og varaformaður Landsambands eldri borgara. Jólabasarinn var svo 21. nóv. og var glatt á hjalla. Nemendur 10. bekkjar Grunnskólans komu 23. nóv. og…

  • |

    Menningarferð um nærsveitir

    Ég fór ásamt félögum mínum í Norræna félaginu í Ölfusi í menningarferð um nærsveitir sem var svo skemmtileg að ég má til með að deila ferðasögunni.  Listasafn Árnesinga Við byrjuðum í Listasafni Árnesinga. Undir leiðsögn Kristínar Scheving safnstjóra skoðuðum við vidólistaverk eftir listamennina Gary Hill, Steinu og Woody Vasulka. Kristín var ein þeirra sem setti upp…

  • Sláturgerð

    Þau komu trítlandi yfir á Níuna, nemendur 9. bekkjar úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn, mánudag 16. okt. Krakkarnir voru eftirvæntingafullir, því til stóð að búa til 13 slátur með starfsfólki Níunnar og fleirum. Allt gekk þetta eins og í sögu og krakkarnir voru fljót að læra handtökin. Sumir tóku það að sér að smakka soppuna (blóð,…

  • Alltaf heitt á könnunni á 9-unni

    Þá er sumarið komið til okkar og vonandi verður það sólríkt og gott. Hér á 9-unni er alltaf opið frá 8.00 -16.00 ef fólk langar í kaffisopa og að kíkja í dagblöðin. Skipulagt félagsstarf, samkvæmt stundartöflu, er komið í sumarfrí fyrir utan nokkra „bridsara“ sem láta enga farfugla stoppa sig í spilagleðinni og handavinnukonur sem…