Ungur nemur – gamall temur

Sláturgerð á Níunni
Sláturgerð á Níunni

Fimmudaginn 17. október var nemendum 9. bekkjar í heimilisfræðivali í Grunnskólanum í Þorlákshöfn boðið að koma á Níuna (Egilsbraut 9) og gera slátur með starfsmönnum, eldri borgurum í dagdvöl og þeim sem nýta sér þjónustu mötuneytisins.

Nemendur þáðu boðið með þökkum og skunduðu á fund eldri borgara og starfsfólks Níunnar ásamt Berglindi Ósk Haraldsdóttur stuðningsfulltrúa. Sumir þeirra voru vanir sláturgerð og kunnu til verka en aðrir aldeilis óvanir að skera mör, hakka lifur og nýru, sníða vambir og sauma, hræra í blóði og þela upp en allri fundu sér verk að vinna.

Krakkarnir komu á Níuna snemma morguns og voru fram að hádegi. Það var nóg að gera enda tekin 13 slátur sem verða á boðstólum mánaðarlega yfir vetrarmánuðina.

Í hádeginu í dag var öllum 9. bekkingum, ásamt Önnu Júlíusdóttur og Láru Hrund Bjargardóttur kennurum, boðið að smakka herlegheitin, auk allra sem komu að sláturgerðinni.

Eftir því sem best verður komist þótti öllum þessi samvera skemmtileg og gefandi. „Þetta er komið til að vera" svo vitnað sé í Sigrúnu Theódórsdóttur forstöðumann Níunnar og Ólínu Þorleifsdóttur aðstoðarskólastjóra.

 

ÝTIÐ HÉR til að sjá fleiri myndir.

Similar Posts

  • Vetrardagskrá fyrir haustönn 2016

    Vetrardagskrá Félags eldri borgara í Ölfusi var kynnt á félagsfundi 1. sept. Dagskráin er fjölbreytt að venju með sínu hefðbundna sniði: Leshópur, karlarabb, spiladagur, keramikmálun, tiffany, kortagerð, púkkvinna, boccia og ringó.Á stundatöfluna hefur bæst við meiri hreyfing frá því á vorönn. Hollvinafélagið Höfn ætlar að bjóða félagsmönnum að stunda leikfimi í Íþróttamiðstöðinni á mánudögum kl….

  • Vetrardagskrá 9-unnar að ljúka

    Nú er vetrardagskrá 9-unnar að líða undir lok að þessu sinni. Fólk er farið að sinna öðru með hækkandi sól. Sigrún Theódórsdóttir komst svo skemmtilega að orði í pistli sínum í maíhefti Bæjarlífs er hún sagði „Þá er sumarið að bresta á með allri sinni fegurð og fuglasöng, mannfólkið skokkar út um mela og móa í…

  • Þorrablót 2016

    Það var glatt á hjalla á þorrablóti Félags eldri borgara í Ölfusi og Níunnar á bóndag 22. janúar síðastliðinn. Salurinn á Níunni var fullur af prúðbúnu fólki. Borð svignuðu undan þorramat frá Kjarnafæði en um matinn sáu þær stöllur Beata og Sigga sem vinna í mötuneyti Níunnar. Sönghefti voru á borðum með þorrasöngvum sem sungið…

  • Ásberg í framboð

    Ásberg Lárenzínusson formaður FEBÖ lætur ekki deigan síga. Hann er á framboðslista hjá Flokki fólksins fyrir alþingiskosningarnar í 20. október nk. fyrir Suðurkjördæmið. Hann skipar 20. sæti listans.Ásberg hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagsmálum, stjórnmálum og hinu blómlega menningarlífi Þorlákshafnar. Hann hlaut menningarverðlaun Ölfuss 2016 enda barðist hann fyrir því að stofnaður yrði tónlistarskóli í…

  • Allt komið á fullt á 9-unni og hjá FEBÖ

    Haustið er komið og vetrarstarfið hafið á 9-unni og þar með hjá Félagi eldriborgara í Ölfusi. Sitthvað nýtt verður á döfinni og annað með hefðbundnum hætti. Helstu nýjungar eru: Útskurðarnámskeið undir leiðsögn Valdimars Ingvasonar. Það verður á fimmtudögum kl. 9. Silkimálun er líka nýjung og Eyjólfur Veturliði Jónsson kennir. Námskeiðið er klukkan 13 á föstudögum. Tiffaný…

  • |

    Að byrja í golfi á gamals aldri

    23 október spiluðum við hjónin golf á Þorlákshafnarvelli. Vinafólk okkar fékk þá snildarhugmynd að það væri upplagt að spila golf þennan dag og buðu okkur með. Þau er þaulvön en það erum við hjónin ekki. Í einfeldni minni hélt ég að maður spilaði ekki golf þegar væri komið svona langt fram í október. Golfdella Um…