Phu Quoc – Perlueyjan í Víetnam
12. febrúar 2026 Ferðasagan er á leiðinni. Þetta er prufusíða. SG
12. febrúar 2026 Ferðasagan er á leiðinni. Þetta er prufusíða. SG
Almyrkvi á sólu varð síðdegis 12. ágúst. Margir lögðu leið sína héðan úr Þorlákshöfn út í Selvog og í Herdísarvík til að upplifa þetta náttúruundur. Sú sem þetta ritar ákvað að fara í Selvoginn með sínum manni og varð staður skammt frá Herdísarvík fyrir valinu. Þó nokkur mannfjöldi hafði safnast saman við Strandarkirkju og Herdísarvík….
Laugardagurinn 8. ágúst er runninn upp og þar með er síðasti dagur bæjarhátíðarinnar Hamingjan við hafið hafið. Hátíðinni lýkur í kvöld með bravúr þegar stórsöngvararnir Bríet, Stefán Hilmars, KK og Flóni stíga á svið um klukkan níu. Að tónleikunum verður loknum ball og flugeldasýning. En áður en fjörið byrjar í kvöld ætla að halda fólkið…
Það var sannkölluð dansgleði á 9-unni fimmtudagskvöldið 6. ágúst þegar haldið var harmóníkuball í tengslum við bæjarhátíðina Hamingjan við hafið . Hljómsveit Úlfars Sigmarssonar lék fyrir dansi og hélt uppi frábærri stemningu. Með sveitinni lék Sigurgeir Skafti Flosason bassaleikari, sem jafnframt hefur umsjón með hamingjudagskrá og framkvæmd hátíðarinnar. Dansgólfið fylltist fljótt og gestir dönsuðu af…
Bæjarhátíðin Hamingjan við hafið hefst í dag, 4. ágúst , með sýningu Leikhópsins Lottu í Skrúðgarðinum kl. 16.00. Að því loknu tekur við fjölbreytt og skemmtileg dagskrá sem stendur fram á laugardag, 9. ágúst . Hátíðinni lýkur með glæsilegum stórtónleikum í Skrúðgarðinum og síðan tekur við „ball ársins“, eins og segir í dagskránni. Að lokum…
Vinátta og samstarf Nýafstaðið vinabæjamót Norræna félagsins í Ölfusi, í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus, sem haldið var dagana 1.–5. júlí 2026, heppnaðist einstaklega vel. Þátttakendur komu frá Vimmerby í Svíþjóð og Kauhava í Finnlandi. Fulltrúi bæjarstjórnarinnar í Kauhava, Vesa Rantala, kom til að kynna sér framkvæmd vinabæjarmótsins og jafnframt að bjóða formlega til næsta vinabæjarmóts…
Ég fór ásamt félögum mínum í Norræna félaginu í Ölfusi í menningarferð um nærsveitir sem var svo skemmtileg að ég má til með að deila ferðasögunni. Listasafn Árnesinga Við byrjuðum í Listasafni Árnesinga. Undir leiðsögn Kristínar Scheving safnstjóra skoðuðum við vidólistaverk eftir listamennina Gary Hill, Steinu og Woody Vasulka. Kristín var ein þeirra sem setti upp…
23 október spiluðum við hjónin golf á Þorlákshafnarvelli. Vinafólk okkar fékk þá snildarhugmynd að það væri upplagt að spila golf þennan dag og buðu okkur með. Þau er þaulvön en það erum við hjónin ekki. Í einfeldni minni hélt ég að maður spilaði ekki golf þegar væri komið svona langt fram í október. Golfdella Um…
Þau komu trítlandi yfir á Níuna, nemendur 9. bekkjar úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn, mánudag 16. okt. Krakkarnir voru eftirvæntingafullir, því til stóð að búa til 13 slátur með starfsfólki Níunnar og fleirum. Allt gekk þetta eins og í sögu og krakkarnir voru fljót að læra handtökin. Sumir tóku það að sér að smakka soppuna (blóð,…
Vetrardagskrá Níunnar er komin á fullt skrið. Stundatöfluna er hægt að nálgast hér. Ný spilalota hófst 2. október og eru spiluð fjögur kvöld í lotu en úrslitin eru reiknuð út frá þremur kvöldum, þannig að það kemur ekki að sök ef eitt kvöld dettur út. Hildigunnur heldur áfram með leikfimina tvisvar í viku, boccia er…