Dansinn dunaði á 9-unni á Hamingjunni við hafið

Fjör og dansgleði á harmóníkuballi á 9-unni

Það var sannkölluð dansgleði á 9-unni fimmtudagskvöldið 6. ágúst þegar haldið var harmóníkuball í tengslum við bæjarhátíðina Hamingjan við hafið. Hljómsveit Úlfars Sigmarssonar lék fyrir dansi og hélt uppi frábærri stemningu. Með sveitinni lék Sigurgeir Skafti Flosason bassaleikari, sem jafnframt hefur umsjón með hamingjudagskrá og framkvæmd hátíðarinnar.

Dansgólfið fylltist fljótt og gestir dönsuðu af léttleika og innlifun. Það var greinilegt að tónlistin féll vel í geð og stemningin var einstaklega góð frá upphafi til enda.

Í lok tveggja klukkustunda dansleiks kvaddi hljómsveitin með hinu sígilda lagi „Ég er kominn heim“, sem Óðinn Valdimarsson gerði sívinsælt með K.K. sextettinum árið 1960. Lagið var fallegur endapunktur á ánægjulegu kvöldi.

Það var ekki annað að sjá en að gestir héldu glaðir heim að balli loknu – ef til vill með örlítið lúna fætur eftir fjörugan dans, en umfram allt með bros á vör.

Similar Posts