Frístundamessa verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn næstkomandi sunnudag, 6. september, kl. 11.00–13.00. Þar geta íbúar á öllum aldri kynnt sér fjölbreytt íþrótta-, félags- og frístundastarf í sveitarfélaginu.
Norræna félagið í Ölfusi verður á staðnum og kynnir fjölbreytts starfsfélagsins, sem meðal annars í menningartengdum viðburðum með norrænu ívafi og norrænu vinabæjarsamstarfi. Allir eru velkomnir og engin skilyrði þarf að uppfylla til að ganga í skemmtilega félagsskap. Það er þó ekki verra að hafa áhuga á norrænu menningu og samstarfi.
Komið og kynnið ykkur starfið — hægt verður að skrá sig í félagið á Frístundamessunni.
Vefurinn Hamingjuhöfn gerir Frístundamessunni góð skil.
