Gengið um Þorlákshöfn í heilsuviku

Í evrópsku heilsuvikunni, 23.–30. september, tekur Ölfus þátt í að hvetja íbúa sveitarfélagsins til hreyfingar. Laugardagsmorguninn 26. september var boðið upp á göngu um Þorlákshöfn undir stjórn Elínar Bjargar Jónsdóttur. Gangan tók um klukkustund. Síung reimaði á sig skóna og skellti sér með.

Lagt var af stað frá Ráðhúsi Ölfuss og gengið vestur Selvogsbraut að Vesturbyggð, nýjasta hverfi bæjarins. Sumir í hópnum höfðu ekki komið þangað lengi og ráku í rogastans yfir því hversu mörg hús höfðu risið á skömmum tíma. Þaðan lá leiðin norður eftir malbikuðum göngustígum. Gönguhópurinn dáðist að fjallasýninni og lágvöxnum gróðurinum sem hafði tekið á sig haustlitina. Veðrið var hið ágætasta.

Næst var stefnan tekin austur að Skötubótinni. Ein úr hópnum hafði ekki komið þangað lengi. Hún hafði haldið að ekki væri lengur hægt að komast niður í fjöruna vegna stóru trukkanna sem byrgðu sýn þangað. Það er þó enn hægt, þótt aðgengið sé ekki sérlega gott.

Svört sandströndin blasti við og hafið teygði sig eins langt og augað eygði. Öldurnar léku við fjöruborðið og skildu eftir fallegt og fjölbreytt mynstur í sandinum. Elín Björg fór með hópinn nokkurn spöl eftir ströndinni. Þar kom hópurinn auga á tjald Fjörugusunnar sem kúrði í Kambinum. Lára, annar eiginda Fjörugusunnar, var að undirbúa það fyrir gesti sem voru væntanlegir innan skamms.

Gönguhópurinn sneri síðan við og gekk að smábátahöfninni og þaðan aftur að Ráðhúsinu. Þar lauk þessum skemmtilega hring.

Það er eitthvað heillandi við að ganga í Skötubótinni. Þangað er gott að skækja sér orku og næringu fyrir sálina.

 

Similar Posts