Konukvöld Félags eldri borgara í Ölfusi var haldið á 9-unni 25. september. Handverk var þema kvöldsins og konur voru hvattar til að klæðast flíkum sem þær höfðu sjálfar prjónað, heklað, saumað eða ofið og bera skartgripi sem þær höfðu búið til. Þær gátu gengið um salinn og sýnt flíkurnar eða lagt annað handverk til sýnis á borðum og slá.
Sigríður Ósk Zoëga Sigurðardóttir, Guðbjörg Ásgeirsdóttir og Margrét Kristjánsdóttir höfðu veg og vanda af kvöldinu sem var vel skipulagt og heppnaðist vel. Salurinn var fallegur skreyttur með dúkuðum borðum og náttúruskreytingum úr rauðum og hvítum reyniberjum, trjágreinum og laufblöðum.

Frá þjóðbúningum til jólapeysa
Dagskráin hófst á að þrjár glæsilegar konur sýndu íslenska þjóðbúninga: faldbúning frá 19. öld sem Guðbjörg Ásgeirsdóttir hafði saumað og upphluti frá 19. og 20. öld sem Guðrún Sigríks Sigurðardóttir og Heiðdís Andradóttir höfðu saumað sjálfar.
Því næst sýndu konur kjóla og aðrar flíkur sem þær höfðu sjálfar prjónað, saumað eða hannað. Konurnar í prjónahópnum, sem hittast á þriðjudögum á 9-unni, ákváðu að prjóna jólapeysur eftir sömu uppskrift. Engin peysa varð þó eins; hver kona hafði sett sinn persónulega svip á sína.
Sögurnar á bak við púðana
Í gryfjunni var fjölbreytt handverk til sýnis, meðal annars silfurskartgripir, útsaumur, saumaðar flíkur, prjónles og hekluð teppi. Þrír púðar vöktu sérstakar athygli og sögurnar á bak við þá voru sagðar gestum.

Ein kvennanna sýndi fallega útsaumaðan púða á svörtum grunni sem hún hafði saumað þrettán ára gömul. Hún kallaði hann grátpúðann sinn. Í handavinnutímanum hafði hún lokið öllum skylduverkefnunum á undan hinum nemendunum. Þegar kennarinn lagði til að hún saumaði púða sem aukaverkefni var hún ekki alls kostar sátt. Hún sagðist ekki geta gert það því móðir hennar hefði ekki efni á að kaupa efnið. Kennarinn hafði hins vegar þegar rætt við móður hennar.
Stúlkan fékk fjórar vikur til að ljúka við púðann fyrir skólasýningu. Það tókst henni án aðstoðar og síðan gaf hún móður sinni púðann. Eftir lát móður hennar kom hann aftur í hennar hendur.
Önnur konan sýndi hippapúðann sinn. Á hippaárum sínum í Danmörku hafði hún saumað út myndir sem áttu að fara í púða. Verkið lá lengi óklárað því henni fannst myndirnar ljótar. Systir hennar hvatti hana til að ljúka við púðann og það gerði hún að lokum. Nú prýðir hann heimili hennar.
Þriðja konan sýndi fjölskyldupúða með prentaðri mynd af öllum barnabörnum sínum. Hún hafði fengið púðann að gjöf og ekki gert hann sjálf. Barnabörnin voru hins vegar öll í peysum sem hún hafði prjónað á þau.
Matur, happdrætti og fjöldasöngur
Á milli atriða var dregið um hvorki meira né minna en 15 happdrættisvinninga. Þeir tengdust allir handverki: útsaumspakkar og garn í fallegum pokum.
Maturinn kom frá Höfninni veisluþjónustu hér í þorpinu. Á boðstólum var lambakjöt, kalkúnn og meðlæti og súkkulaðikaka með rjóma í eftirrétt. Konur létu vel af matnum og fengu sér kaffi á eftir – að minnsta kosti þær sem þorðu að taka áhættuna á að sofna seint um kvöldið.

Þegar konur voru orðnar mettar og enn sælli með lífið og tilveruna tóku Aðalbjörg Halldórsdóttir og Ársæll Guðmundsson við og sungu og spiluðu undir fjöldasöng. Aðalbjörg söng fallega að venju og leiddi fjöldasönginn af öryggi. Konurnar tóku hraustlega undir og hljómuðu eins og fínasti kvennakór. Síðasta lag dagskrárinnar var hið sívinsæla „Ég er kominn heim“.
Konur risu úr sætum og klöppuðu Aðalbjörgu og Ársæli lof í lófa. Þau launuðu fyrir sig með aukalagi. Nefndarkonurnar fengu einnig verðskuldað klapp fyrir vel heppnað konukvöld.
Handverk vekur gleði
Handverksþemað setti svip sinn á kvöldið frá fyrstu stundu. Verkin voru skoðuð og þukluð, dáðst var að þeim og alls staðar spunnust samtöl. Það var ótrúlegt að sjá hve margt fallegt var til sýnis. Og þó höfðu margar konur ekki komið með handverk sitt, auk þeirra fjölmörgu handavinnukvenna sem komust ekki á kvöldið. Þvílíkur mannauður sem býr í þessum konum – sköpunargleðin er óstöðvandi.





























