Haustfundur Félags eldri borgara í Ölfusi
Haustfundur Félags eldri borgara í Ölfusi var haldinn á 9-unni 24. september 2026 og var vel sóttur. Halldór Sigurðsson setti fundinn og sagði að farið yrði yfir vetrardagskrá félagsins. Þá myndi Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster, segja frá spennandi verkefnum sem þar eru í gangi og þeim sem fyrirhuguð eru, ef allt gengur að óskum.
Göngugrind afhent Íþróttamiðstöðinni
Á aðalfundi félagsins í vor kom fram tillaga um að gefa Íþróttamiðstöðinni göngugrind. Tillagan hlaut góðar undirtektir og var samþykkt. Halldór afhenti Ragnari Sigurði Matthíassyni, forstöðumanni Íþróttamiðstöðvarinnar, göngugrindina og Ragnar þakkaði félaginu fyrir gjöfina.
Ragnar sagði að göngugrindin myndi nýtast vel þeim sem þurfa á henni að halda þegar þeir koma í Íþróttamiðstöðina. Nú gætu þeir notað göngugrindina þar í stað þess að þurfa að hafa sína eigin meðferðis.
Páll kynnir starf Ölfus Cluster
Þá tók Páll Marvin Jónsson til máls. Hann sagði frá því að hann væri Reykvíkingur og hefði stundað nám í líffræði í Noregi. Að námi loknu flutti hann til Vestmannaeyja, enda hugnaðist honum ekki að setjast að í Reykjavík, eða „borg óttans“, eins og hann kallaði hana. Frá Vestmannaeyjum lá leiðin til Þorlákshafnar, þar sem hann unir hag sínum vel.
Páll sagði það hafa verið mikil viðbrigði að flytja frá lítilli eyju í Ölfus. Sveitarfélagið er víðáttumikið og býr yfir miklum náttúruauðlindum, meðal annars landi, jarðvarma og grunnvatni. Þar er einnig höfn í stöðugri uppbyggingu.
Hann kynnti starf Ölfus Cluster, sem vinnur að því að efla atvinnusköpun, nýsköpun og rannsóknir með áherslu á Ölfus. Hann fór yfir hverjir standa að klasanum ásamt sveitarfélaginu og sagði frá stjórn hans. Auk Páls starfar Eva Lind Guðmundsdóttir þar sem verkefnastjóri.
Höfnin, landeldi og ferðaþjónusta
Páli varð tíðrætt um uppbyggingu Þorlákshafnar og þau tækifæri sem höfnin skapar. Hann sagði höfnina mikilvæga forsendu vaxtar og taldi að uppbygging hennar gæti styrkt starfsemi sem fyrir er og skapað ný atvinnutækifæri. Þegar spurt var úr sal um tollgæslu kom fram að engin tollgæsla væri í Þorlákshöfn að staðaldri heldur kæmu tollverðir annars staðar frá. Páll lagði áherslu á að þjónusta þyrfti að vaxa samhliða umsvifum hafnarinnar.
Hann ræddi einnig landeldi í Ölfusi og nefndi fyrirtækin First Water og Thor Salmon. Þá nefndi hann þörungaverksmiðjuna Vaxa sem dæmi um nýsköpun í matvælaframleiðslu. Í umfjöllun sinni um ferðaþjónustu sagði hann frá Black Sand Hotel, sem þegar er starfandi, og áformum um uppbyggingu annars hótels við Hafnarskeið.
Meðal annarra tækifæra sem Páll nefndi voru gagnaver, ylrækt og áframhaldandi uppbygging landeldis. Hann sagði ferðaklasaverkefni vera á byrjunarstigi, en því væri meðal annars ætlað að kynna Ölfus sem áfangastað og tengja svæðið við Reykjaneshrygginn.
Að lokum ræddi Páll mikilvægi þess að styrkja innviði samhliða uppbyggingu atvinnulífs og íbúðarbyggðar. Auknum atvinnutækifærum gæti fylgt meira svigrúm fyrir sveitarfélagið til að bæta þjónustu við íbúana.
Vetrarstarf félagsins
Þegar Páll hafði lokið máli sínu var honum klappað lof í lófa og haustfundinum haldið áfram. Halldór fór yfir vetrarstarf félagsins, sem hefst með konukvöldi á 9-unni annað kvöld. Um 50 konur hafa þegar skráð sig. Sirrý Óks nefndarkona fyrir konkvöldið sagði í gamni að helst þyrfti að byggja við 9-una svo allar kæmust fyrir, en þröngt mega sáttir sitja.
Í byrjun desember er fyrirhuguð söngstund á 9-unni. Þar munu þær stöllur Ester og Sigga Guðna leiða sönginn og koma öllum í jólaskap, enda verða eingöngu sungin jólalög.
Á fundinum var samþykkt að fara í Þjóðleikhúsið í febrúar og sjá Hetjur hafsins eftir Ragnar Bragason. Skráningarlisti mun liggja frammi á 9-unni. Félagar greiða miðaverðið inn á reikning félagsins en félagið býður upp á rútuferðina.
Boccia er æft bæði á 9-unni og í íþróttahúsinu. Fólk er hvatt til að koma og prófa að vera með.
Félagsgjaldið er 3.500 krónur og verður innheimt í nóvember. Gjaldkerinn, Jón H., lýsti ánægju sinni með hversu vel félagar standa í skilum.
Að lokum kvaddi Halldór fundarmenn og þakkaði fyrir góðan fund.
