Um þrjátíu konur spiluðu saman í kvennagolfinu hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar í sumar og hefur þátttakan aldrei verið meiri.
Ásta Júlía Jónsdóttir hefur verið potturinn og pannan í kvennagolfinu. Hún fékk golfbakteríuna fyrir um það bil 25 árum og hefur spilað golf allar götur síðan. Þegar ég hitti hana á fallegu heimili hennar og Jóns H. Sigurmundssonar langaði mig að forvitnast um hvenær kvennagolfið hófst og hvernig hugmyndin kviknaði. Margt fleira tengt golfinu bar á góma. Það sást langar leiðir á þeim hjónum að þau stunda útivist - þau voru bæði vel útitekin og kvik í hreyfingum.
Af hverju golf?
„Þegar Jón var fimmtugur fékk hann golfsett frá Kiwanisklúbbnum. Ég var ekki mjög spennt fyrir golfi þá. Jón ákvað að bíða þangað til ég yrði tilbúin að prófa – og ef ég hefði ekki farið væri hann enn að bíða,“ sagði hún hlæjandi. Síðan þá hefur hún farið ófáa golfhringi og mér sýnist sveiflan orðin býsna góð!
Ásta Júlía sagði hugmyndina að kvennagolfinu hafa kviknað fyrir rúmum sextán árum. Hún spilaði þá golf með Jóni, manninum sínum, eins og þau gera enn.
Hún tók eftir því að margir karlar voru að spila einir síns liðs. Hún hafði oft orð á því við Jón og fleiri að hana langaði að sjá fleiri konur á vellinum. Þær gætu spilað með mönnunum sínum, enda væri golf upplagt hjónasport, en líka farið einar eða með vinkonu.
Ásta Júlía kenndi við Grunnskólann í Þorlákshöfn þegar hún byrjaði að stunda golf og sagðist hafa notað hvert tækifæri til að hvetja konur til að koma og prófa. Hún sagðist viss um að hvatningin hefði stundum verið þreytandi, en hún bar árangur og henni tókst að fá nokkrar konur út á völl. Sumar héldu áfram, aðrar hættu en byrjuðu síðar aftur og enn aðrar fundu sig ekki í golfíþróttinni.
Kvennagolfið verður að veruleika
En hvað varð til þess að hún tók að sér að halda utan um kvennagolfið?
Í samráði við Guðmund Baldursson, þáverandi formann Golfklúbbs Þorlákshafnar, tókst Ástu Júlíu að koma kvennagolfinu á laggirnar. Hún var staðráðin í að fá fleiri konur á völlinn og sagðist eiginlega hafa verið sjálfskipuð í hlutverkið. Þau ákváðu hvenær konurnar skyldu hittast og hvert þátttökugjaldið yrði. Þar með var starfið komið af stað. Hún sagði að kvennagolfið hefði alltaf fengið góðan stuðning hjá stjórn klúbbsins.
Á sama tíma og hún sinnti kvennagolfinu var hún kosin í stjórn golfklúbbsins.
„Strákunum fannst gott að hafa konu úr kvennastarfinu í stjórn,“ sagði Ásta Júlía og hló.

Framan af hélt hún ein utan um kvennagolfið, en fyrir fáum árum var skipuð kvennagolfsnefnd sem sér nú um starfið. Í henni sitja Elín Ósk Jónsdóttir, formaður, Gyða Steina Þorsteinsdóttir og Ásta Júlía Jónsdóttir.
Konurnar hittast síðdegis á miðvikudögum og koma víða að, meðal annars nokkrar af höfuðborgarsvæðinu.
Nú er lögð áhersla á að fá fleiri stúlkur og ungar konur í golfið.
Golfbakterían spyr ekki um aldur
Í spjallinu rifjaði Ásta Júlía upp að hin dásamlega Edda Laufey Pálsdóttir hefði byrjað að spila golf rúmlega sjötug að aldri, þegar kvennagolfið var að fara af stað. Hún fékk strax golfbakteríuna og stundaði golfið af kappi. Það skipti hana engu máli þótt hún væri ein að spila. Ásta Júlía mundi vel eftir orðum hennar:
„Ég skil ekki af hverju allar konur í Þorlákshöfn eru ekki að spila golf og njóta þessarar dásamlegu náttúru sem er hér á golfvellinum.“
Ég sagði Ástu Júlíu að ég hefði einmitt ákveðið að taka Eddu Laufeyju mér til fyrirmyndar og byrja í golfi þegar ég yrði sjötug – og ég stóð við það.
Hvernig er hægt að taka þátt?
Starfið hefst með auglýstum kynningarfundi í apríl. Allar konur sem hafa áhuga á kvennagolfinu, bæði byrjendur og vanar, eru hvattar til að mæta, kynna sér starfsemina og ræða hagnýt mál.
Ekki er nauðsynlegt að vera félagi í klúbbnum til að taka þátt. Að sögn Ástu Júlíu var þátttökugjaldið tíu þúsund krónur í sumar. Ákveði þátttakendur að ganga í Golfklúbb Þorlákshafnar gengur gjaldið upp í félagsgjaldið. Frekari upplýsingar veitir kvennagolfsnefndin.
Þegar konurnar mæta í kvennagolfið er þeim skipt í hópa, þrjár til fjórar í hverjum. Reynt er að hafa vanar og óvanar saman svo þær reyndari geti leiðbeint byrjendum, meðal annars um reglurnar sem gilda á golfvellinum.
Ásta Júlía lagði áherslu á að viðhorfið til nýliða skipti miklu máli. Það þurfi að taka vel á móti þeim svo þeim líði vel í hópnum og aldrei tala niður til þeirra þótt þær hafi ekki sömu færni og þær reyndari.
Ég spurði Ástu Júlíu hvort nauðsynlegt væri að fara á námskeið. Hún mælti eindregið með því.
„Það er mjög gott að fá kennslu í hvernig á að halda á kylfu, hvaða kylfu á að nota í hvaða högg og svo framvegis.“
Á vorin eru í boði námskeið fyrir bæði byrjendur og reynslubolta.
Útivera og félagsskapur
Hvaða þýðingu hefur félagsskapurinn fyrir konurnar í kvennagolfinu?
Ásta Júlía sagðist ekki geta betur séð en að konurnar hefðu gaman af því að hittast, kynnast og spila saman. Þær reyndu að mæta tímanlega til að geta spjallað áður en þeim væri raðað í hópa.
En hvað gefur golfið þér?
„Golfið gefur mér svo margt. Það er fyrst og fremst útiveran. Við getum spilað golf hvenær sem er því völlurinn er opinn allan ársins hring. Mér finnst gaman að ganga og golfið býður svo sannarlega upp á það. Mér finnst golfið líka svo skemmtileg íþrótt. Og svo er þetta fjölskyldusport. Öll fjölskyldan er í golfi.“
Eftirminnilegt úrhelli
Er einhver golfferð sem er þér sérstaklega minnisstæð?
Ásta Júlía sagði að konurnar í kvennagolfinu færu tvisvar á sumri og heimsæktu aðra golfvelli í grenndinni. Ein eftirminnilegasta ferðin var þegar farið var á golfvöllinn í Öndverðarnesi fyrir nokkrum árum.
Rétt eftir að golfhringurinn hófst gerði svo mikla rigningu að það var eins og himnarnir hefðu opnast. Konurnar létu það þó ekki á sig fá og luku hringnum, enda var veðrið milt og rigningin féll lóðrétt niður.
Skórnir voru fullir af vatni og það sullaði í þeim við hvert skref. Leðurgolfhanskarnir urðu ónýtir og kylfurnar runnu til í höndunum. Þegar komið var í golfskálann var ekki þurr þráður á konunum. Þótt nokkrar hefðu haft regnföt meðferðis dugðu þau ekki til að halda þeim þurrum í úrhellinu.
„Þetta var mjög skemmtileg ferð og eftirminnileg. Hún er oft rifjuð upp og hlegið dátt að minningunni. Annars höfum við alltaf verið heppnar með veður í þessum ferðum.“
Björt framtíð
Þegar ég spurði Ástu Júlíu um framtíð kvennagolfsins sagðist hún líta björtum augum á hana. Starfið ætti bara eftir að eflast og alltaf væri gaman að fá nýjar konur í hópinn.
Hún hefði líka tekið eftir því að konurnar í kvennagolfinu væru í auknum mæli farnar að spila með mönnunum sínum. Það hefði einmitt verið eitt af markmiðunum þegar hugmyndin að kvennagolfinu kviknaði, þótt hún væri ekki alveg viss um hvort rekja mætti þessa aukningu til kvennagolfsins.
Ég þakka Ástu Júlíu fyrir spjallið og kaffið. Úti er ekta golfveður þótt kominn sé nóvember.
Eftir viðtalið komst ég að því að Ásta Júlía hafði árið 2013 hlotið heiðursviðurkenningu klúbbsins fyrir sjálfboðastarf í þágu kvenna. Sjálf hafði hún ekki minnst á það.
SG
Aðalmyndin er af Ástu Júlíu og dótturdóttur hennar Ágústu Ósk. Mynd: Jón H. Sigurmundsson
