Ný fjögurra kvölda félagsvist að hefjast á Níunni

Febrúar

leshopur
Hluti af leshópnum.

Gaman er að segja frá því að hið árlega Þorrablót sem haldið var á Níunni á bóndadaginn var með eindæmum vel lukkað. Gestir voru hátt í sextíu talsins og skemmtu allir sér frábærlega vel og þorramaturinn reyndist hinn besti. Leshópurinn fór á kostum og fékk fólk til að kveðast á eins og gert var hér áður og fyrr. Þá lék Ester Hjartardóttir á píanó undir fjöldasöng og sungu gestir af miklum krafti. Kvöldið var sem sagt mjög vel heppnað í alla staði og fólk strax farið að hlakka til næsta þorrablótsins að ári.
Félagsvistin hefur gengið vel fyrir sig og næsta fjögurra kvölda syrpa hefst 23. febrúar næstkomandi.

spilavist
Hvað ertu með á hendinni?

Rétt er að taka fram að aðalfundur FEBÖ verður klukkan 14, laugardaginn 21. febrúar.

Nú er heill mánuður liðinn síðan farið var að elda matinn á Níunni fyrir þá sem þar borða. Er fólk mjög ánægt með þetta fyrirkomulag og þennan heimatilbúna mat. Eins og áður getur fólk komið og borðað reglulega á Níunni eða boðað komu sína með dagsfyrirvara, langi það til að prófa matinn og lyfta sér upp með því að kíkja þangað og snæða með öðrum matargestum. Aðsókn hefur verið góð allt frá tíu upp í tuttugu og fimm manns.

Einu breytingarnar sem orðið hafa á stundatöflu Níunnar eru að tiffaný námskeiðin eru nú bæði á miðvikudögum klukkan 9 og 13 og þátttaka er góð.

fb

 

Tengdar færslur

  • Fréttir af Níunni 2. des. 2016

    Vetrarstarfið á Níunni hefur að mestu verið hefðbundið en leikfimi undir stjórn Hildigunnar sjúkraþjálfara er þó ný af nálinni. Leikfimiæfingarnar þykja mjög góðar og gárungar segja; að nú sé fólk farið að geta klippt á sér táneglur og pússað hælana eftir að hafa stundað leikfimina það sem af er vetri enda er aðsóknin mikil. Boccia…

  • Vorönnin á Níunni er hafin og segja má að starfið verði með nokkuð hefðbundnum hætti. Þeir hörðustu eru þegar byrjaðir, briddsararnir, karlarnir í karlarabbinu, leshópurinn og boccia fólkið en síðan tekur eitt við af öðru að venju Boccia verður í íþróttahúsinu á þriðjudögum kl. 10.30 og föstudögum kl. 11.00. Kortagerðin hefst 15. jan. klukkan 13.00….

  • Þorrablót 2017

    Þorrablót Félags eldri borgara í Ölfusi var haldið á bónadag 20. febrúar í sal Níunnar. Viðgerðir og endurbætur hafa staðið yfir á gólfinu í salnum síðan 3. janúar og var kappkostað við að ljúka verkinu fyrir blótið. Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður vígði nýtt hljóðkerfi en hún var veislustjóri að venju. Þorramaturinn kom frá Kjarnafæði sem Beata…

  • Sláturgerð

    Þau komu trítlandi yfir á Níuna, nemendur 9. bekkjar úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn, mánudag 16. okt. Krakkarnir voru eftirvæntingafullir, því til stóð að búa til 13 slátur með starfsfólki Níunnar og fleirum. Allt gekk þetta eins og í sögu og krakkarnir voru fljót að læra handtökin. Sumir tóku það að sér að smakka soppuna (blóð,…

  • Bocciamót

    Nokkrir áhugasamir úr Félagi eldri borgara í Ölfusi hafa stundað Boccia af kappi í Íþróttamiðstöðunni í vetur. Ásberg Lárenzinusson var ánægður með árangur vetrarins: „Náðum silfri á Suðurlandsmótinu á Selfossi sem haldið var í 9. apríl sl. Silfurliðið var skipað: Sigurði Ólafssyni, Ingibjörgu Sæmundsdóttur, Brynju Herbertsdóttur og Kristjáni Óskarssyni. Tókum einnig þátt í Íslandsmeistaramótinu á…