Vetrarstarfið á Níunni hefur að mestu verið hefðbundið en leikfimi undir stjórn Hildigunnar sjúkraþjálfara er þó ný af nálinni. Leikfimiæfingarnar þykja mjög góðar og gárungar segja; að nú sé fólk farið að geta klippt á sér táneglur og pússað hælana eftir að hafa stundað leikfimina það sem af er vetri enda er aðsóknin mikil.
Boccia hópurinn fór á Eyrarbakka að heimsækja Boccia hópinn þar, þann 21. nóvember. Hópurinn vígði nýju bolina sína og var svona sallafínn í þeim.
Í byrjun nóvembermánaðar var haldið konukvöld á Níunni og var salurinn fullur af konum á öllum aldri. Talið er að þarna hafi verið slegið met í aðsókn – og konurnar skemmtu sér ljómandi vel.
Jólabasar var haldinn laugardaginn 19. nóvember á Níunni og var mikið af fallegu handverki til sölu og sannkölluð kaffihúsastemning - með vöfflum, heitu súkkulaði og að sjálfsögðu var jólatónlist leikin.
Félagsvist hefur verð spiluð vikulega í haust, á hverjum mánudegi, og er eitt kvöld eftir á þessu ári, mánudag 4. des. kl. 20.
Jólabingó verður haldið á Níunni þann 12. desember kl. 20. Allri eru velkomnir; alltaf gaman að hittast á aðventunni og spila bingó og ekki skemmir að eiga kannski von á vinningi!
Sönghópurinn Tónar og Trix ætar að vera með jólatónleika í Versölum, Ráðhúsi Ölfus, þriðjudaginn 13. des. kl. 20.
Nemendur tónlistarskólans ætla að koma á Níuna, miðvikudaginn 14. desember kl. 15.30, og spila fyrir gesti og gangandi. Allir velkomnir.
Það er alltaf rjúkandi kaffi á boðstólum á Níunni og hver veit nema að jólasmákökur verði í skálum á aðventunni og það væri sannarlega gaman að sjá sem flesta reka inn nefið.
Similar Posts
Ásberg í framboð
BySíungÁsberg Lárenzínusson formaður FEBÖ lætur ekki deigan síga. Hann er á framboðslista hjá Flokki fólksins fyrir alþingiskosningarnar í 20. október nk. fyrir Suðurkjördæmið. Hann skipar 20. sæti listans.Ásberg hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagsmálum, stjórnmálum og hinu blómlega menningarlífi Þorlákshafnar. Hann hlaut menningarverðlaun Ölfuss 2016 enda barðist hann fyrir því að stofnaður yrði tónlistarskóli í…
Hátíðarhattar, útigrill, stólajóga og leirgerð í boði á 9-unni í vetrarlok
BySíungÞá fer vetrastarfið á 9-unni að renna sitt skeið en þó er kannski hápunkturinn eftir, Hafnardagar og skemmtilegheitin í kringum þessa ágætu bæjarhátíð okkar. Í fyrra litu í fyrsta sinn bæjarhátíðarhattarnir dagsins ljós og vöktu mikla athygli og ánægju. Konur í Félagi eldri borgarra hafa ekki setið auðum höndum að undanförnu og hefur þeim tekist…
Þorrablót 2016
BySíungÞað var glatt á hjalla á þorrablóti Félags eldri borgara í Ölfusi og Níunnar á bóndag 22. janúar síðastliðinn. Salurinn á Níunni var fullur af prúðbúnu fólki. Borð svignuðu undan þorramat frá Kjarnafæði en um matinn sáu þær stöllur Beata og Sigga sem vinna í mötuneyti Níunnar. Sönghefti voru á borðum með þorrasöngvum sem sungið…
Allt komið á fullt á 9-unni og hjá FEBÖ
BySíungHaustið er komið og vetrarstarfið hafið á 9-unni og þar með hjá Félagi eldriborgara í Ölfusi. Sitthvað nýtt verður á döfinni og annað með hefðbundnum hætti. Helstu nýjungar eru: Útskurðarnámskeið undir leiðsögn Valdimars Ingvasonar. Það verður á fimmtudögum kl. 9. Silkimálun er líka nýjung og Eyjólfur Veturliði Jónsson kennir. Námskeiðið er klukkan 13 á föstudögum. Tiffaný…
Dagur aldraðra
BySíungÞað var falleg og notaleg helgistund á sal Níunnar á uppstigningardag – á degi aldraðra. Salurinn var þéttskipaður fólki sem hlýddi á fallegan söng Yngri barnakórs Grunnskólans í Þorlákshöfn undir stjórn Sigþrúðar Harðardóttur og Gests Áskelssonar sem spilaði jafnframt undir sönginn. Séra Baldur Kristjánsson leiddi helgistundina og Guðmundur S. Brynjólfsson djákni predikaði. Uppstigningardagur var gerður…
Þorrablót 2017
BySíungÞorrablót Félags eldri borgara í Ölfusi var haldið á bónadag 20. febrúar í sal Níunnar. Viðgerðir og endurbætur hafa staðið yfir á gólfinu í salnum síðan 3. janúar og var kappkostað við að ljúka verkinu fyrir blótið. Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður vígði nýtt hljóðkerfi en hún var veislustjóri að venju. Þorramaturinn kom frá Kjarnafæði sem Beata…
