Hátíðarhattar, útigrill, stólajóga og leirgerð í boði á 9-unni í vetrarlok

Maí

Þá fer vetrastarfið á 9-unni að renna sitt skeið en þó er kannski hápunkturinn eftir, Hafnardagar og skemmtilegheitin í kringum þessa ágætu bæjarhátíð okkar.

Hattar
Þæfðir hattar fyrir Hafnardaga.

Í fyrra litu í fyrsta sinn bæjarhátíðarhattarnir dagsins ljós og vöktu mikla athygli og ánægju. Konur í Félagi eldri borgarra hafa ekki setið auðum höndum að undanförnu og hefur þeim tekist að töfra fram ótrúlegt úrval höfuðfata. Í fyrra töluðu karlar um að ekki hefði verið hugað að þeirra þörfum í hattaframleiðslunni en nú var bætt úr því og í boði eru að þessu sinni ekki aðeins kvenhöfuðföt heldur líka höfuðföt fyrir bæði karla og krakka. Það er um að gera að líta við á Níunni og velja sér hátíðarhatt. Þeir kosta frá 2000 til 3500 krónur stykki eftir stærð og gerð og það er alltaf hægt að fá sér hatt þegar 9-an er opin.

En það verður fleira um að vera en hattasala á 9-unni. Fimmtudaginn 4. júní verður útigrill frá klukkan 18 til 20. Fólk kemur þá með eitthvað gott fyrir sig að borða og verður það grillað á frábæru kolagrilli. Rétt er að hafa það einnig meðferðis eitthvert meðlæti og drykkjarföng eftir ósk hvers og eins. Frá klukkan 20 til 23 verður síðan stiginn dans við harmoníkuundirleik . Skemmtileg byrjun á bæjarhátíð fyrir eldri borgarana sem koma á þessa grillhátíð 9-unnar.

Áður en júnímánuður gengur í garð má minna á að enn eru eftir fjórir stólajógatímar. Þeir eru föstudagana 8., 15., 22., og 29. maí og hefjast klukkan 9.45.

hani
Þessi hani bíður eftir að fara út í garð í sumar.

Og ekki er allt búið enn. Það gefst tækifæri til að búa sér til fáeina sumarlega hluti úr leir áður en vetrarstarfinu lýkur. Frjálsir tímar í leirgerðinni verða 13., 20., og 27. maí. Til er töluvert af leir á 9-unni og fólk getur komið og keypt sér kíló af leir fyrir 500 krónur, unnið úr leirnum eins og hver og einn vill og svo verða hlutirnir glerjaðir og brenndir. Þetta eru eins og áður sagði frjálsir tímar og ekki verða sérstakir leiðbeinendur á staðnum en þeir sem hafa verið í leir áður kunna áreiðanlega til verka og geta leiðbeint þeim sem minna kunna. Fyrsti dagurinn verður notaður í sköpun og síðan verður leirinn þurrkaður og brenndur og loks glerjaður. Þessir frjálsu leirtímar verða frá klukkan 13 til 15. Grípið tækifærið og búið nú til það sem þið höfðuð ekki komist til að gera áður.

Svo er rétt að minna fólk á að það er alltaf hægt að líta við á 9-unni. Þangað koma ýmsir og grípa í spil, prjónakonurnar geta tekið með sér prjónana og fengið sér kaffisopa og smáspjall eða þið getið bara komið til að spjalla við þá sem þarna kunna að vera staddir í það og það skiptið.

Similar Posts

  • Ásberg í framboð

    Ásberg Lárenzínusson formaður FEBÖ lætur ekki deigan síga. Hann er á framboðslista hjá Flokki fólksins fyrir alþingiskosningarnar í 20. október nk. fyrir Suðurkjördæmið. Hann skipar 20. sæti listans.Ásberg hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagsmálum, stjórnmálum og hinu blómlega menningarlífi Þorlákshafnar. Hann hlaut menningarverðlaun Ölfuss 2016 enda barðist hann fyrir því að stofnaður yrði tónlistarskóli í…

  • Vorferð, Landsmót 50+ og Hafnardagar

    Vorferð FEBÖ var farin að þessu sinni til Siglufjarðar og dvalið á hótel Sigló í tvær nætur. Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Fjallabyggð var leiðsögumaður okkar og ók með okkur um Siglufjörð og Ólafsfjörð og sagði okkur frá bæjunum. Við skoðuðum Þjóðlagasetrið, Síldarminjasafnið og bjórverksmiðju. Við vorum heppin með veður eins og reyndar alltaf í ferðunum okkar…

  • Vetrarstarf Tóna og Trix

    Vetrarstarf sönghópsins Tóna og Trix hefst með aðalfundi sem verður haldinn föstudaginn 7. október kl. 10.00 á Níunni. Þar verður farið fyrir reikninga og vetrarstarfið rætt. Sönghópurinn stefnir að því að hefja söngæfingar föstudaginn 14. október kl. 10.00 sem verður æfingardagur Tóna og Trix í vetur. Þessi gefandi og glaðlegi félagsskapur óskar svo sannarlega eftir…

  • Gaflarakórinn í heimsókn

    Gaflarakórinn, kór eldri borgara í Hafnarfirði, söng á Níunni dag fyrir fullan sal af fólki. Stjórnandi kórsins er Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir. Kórinn söng mörg lög og átti nokkur aukalög þegar hann var klappaður upp oftar en einu sinni.Gaflarakórinn var á yfirreið um Suðurland og ákvað að koma við í Þorlákshöfn, syngja fyrir félagaga sína í…

  • Bocciamót

    Nokkrir áhugasamir úr Félagi eldri borgara í Ölfusi hafa stundað Boccia af kappi í Íþróttamiðstöðunni í vetur. Ásberg Lárenzinusson var ánægður með árangur vetrarins: „Náðum silfri á Suðurlandsmótinu á Selfossi sem haldið var í 9. apríl sl. Silfurliðið var skipað: Sigurði Ólafssyni, Ingibjörgu Sæmundsdóttur, Brynju Herbertsdóttur og Kristjáni Óskarssyni. Tókum einnig þátt í Íslandsmeistaramótinu á…

  • Frá aðalfundi FEBÖ 20. feb. 2016

    Það var mjög góð mæting á aðalfund Félags eldri borgara í Ölfusi að Egilsbraut 9, laugardaginn 20. febrúar 2016.Ásberg Lárentsínusson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og var að vonum ánægður með góða mætingu. Hann bað fólk um að rísa á fætur og minnast látinna félaga. Hann skipaði Önnu Lúthersdóttur fundarstjóra með samþykki fundarmanna.Guðfinna Karlsdóttir…