Nú er vetrardagskrá 9-unnar að líða undir lok að þessu sinni. Fólk er farið að sinna öðru með hækkandi sól. Sigrún Theódórsdóttir komst svo skemmtilega að orði í pistli sínum í maíhefti Bæjarlífs er hún sagði „Þá er sumarið að bresta á með allri sinni fegurð og fuglasöng, mannfólkið skokkar út um mela og móa í sólinni og skipulögð vetrardagskrá 9-unnar hopar undan góða veðrinu og þá er um að gera að valhoppa í sundlaugina eða á púttvöllinn og fá smá freknur á nefið.“
Njótið sumarsins.
Similar Posts
Unaðsdagar í Hólminum og ný stjórn FEBÖ
BySíung
Aðalfundur Félags eldri borgara í Ölfusi var haldinn í febrúar og var vel sóttur. Meðal mála var að sjálfsögðu kjör stjórnar og einnig var sagt frá sumarferð félagsins sem lofar góðu en ferðalangar munu bregða sér á Unaðsdaga í Hólminum og dveljast þar frá mánudegi til föstudags síðast í apríl.Sú breyting varð á í kjölfar…
Fréttir af Níunni í upphafi árs 2017
BySíung
Félagsstarfið á Níunni er hafið að nýju eftir jól og áramót. Leshópurinn hittist að venju á mánudögum kl. 13.00 og er upplagt fyrir þá sem hafa yndi af lestri góðra bóka að mæta, lesa saman og ræða málin. Þeir sem hafa áhuga á að skera út í tré geta mætt á fimmtudagmorgnum kl. 10.00. Þar…
Aðalfundur FEBÖ
BySíung
Félag eldri borgara í Ölfusi -FEBÖ- heldur aðalfund sinn, laugardaginn 11. febrúar 2017 kl.14.00 að Egilsbraut 9, Þorlákshöfn. Dagskrá fundar: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin.
Þorrablót 2016
BySíung
Það var glatt á hjalla á þorrablóti Félags eldri borgara í Ölfusi og Níunnar á bóndag 22. janúar síðastliðinn. Salurinn á Níunni var fullur af prúðbúnu fólki. Borð svignuðu undan þorramat frá Kjarnafæði en um matinn sáu þær stöllur Beata og Sigga sem vinna í mötuneyti Níunnar. Sönghefti voru á borðum með þorrasöngvum sem sungið…
Undirbúningur fyrir jólabasarinn hafinn
BySíung
Þá er októbermánuður genginn í garð og styttist óðum í jólabasarinn. Undirbúningur gengur vel og spretta hér upp alls konar jólafígúrur á miðvikudögum en þá fer basarvinnan fram og munið að allir eru velkomnir að taka þátt í henni og koma með sínar hugmyndir.Tréútskurður er kominn í fullan gang og eru enn laus pláss þar,…
Vorferð, Landsmót 50+ og Hafnardagar
BySíung
Vorferð FEBÖ var farin að þessu sinni til Siglufjarðar og dvalið á hótel Sigló í tvær nætur. Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Fjallabyggð var leiðsögumaður okkar og ók með okkur um Siglufjörð og Ólafsfjörð og sagði okkur frá bæjunum. Við skoðuðum Þjóðlagasetrið, Síldarminjasafnið og bjórverksmiðju. Við vorum heppin með veður eins og reyndar alltaf í ferðunum okkar…
