Frá aðalfundi FEBÖ 20. feb. 2016

Ásberg flytur skýrslu stjórnar.
Ásberg flytur skýrslu stjórnar.

Það var mjög góð mæting á aðalfund Félags eldri borgara í Ölfusi að Egilsbraut 9, laugardaginn 20. febrúar 2016.

Ásberg Lárentsínusson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og var að vonum ánægður með góða mætingu. Hann bað fólk um að rísa á fætur og minnast látinna félaga. Hann skipaði Önnu Lúthersdóttur fundarstjóra með samþykki fundarmanna.

Guðfinna Karlsdóttir ritari las upp fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt.

Ásberg las skýrslu stjórnar, þar fór hann m.a. yfir félagstarfið hjá FEBÖ sem er með eindæmum gott, nefndi að hann og Bjarni Valdimarsson hefðu sótt landsþing LEB sem var hið ágætasta þing. Hann sagði einnig frá áhugaverðu þingi sem bar yfirskriftina Framtíðarþing um farsæla öldrun. Þingið var haldið á Selfossi 16. nóvember síðastliðinn. Tekin var saman skýrsla um þingið en hana má finna á heimasíðunni undir flipanum Farsæl öldrun. Á þinginu varð til þessi vísa:

Farsæl öldrun er okkar fag
fylkjum saman liði í dag.
Gerum öllum öðrum gott
endum síðan lífið flott.

Ásberg greindi frá hverjir skipuðu öldungaráð Sveitarfélagsins Ölfuss en það eru: Ásberg Lárentsínusson, Guðfinna Karlsdóttir frá FEBÖ og frá sveitarfélaginu þeir Guðmundur Oddgeirsson, sem er formaður ráðsins, og Guðni Pétursson.

Haldnir voru þrír félagsfundir á árinu. Skemmtanalífið var með miklum blóma þó engin árshátíð hafi verið haldin í þetta sinn. Karlarnir í félaginu héldu karlakvöld sem þeir nefna kótelettuna, nafnið er sennilega dregið af því hvað er á boðstólnum þetta kvöld. Þá var haldinn jólabasar, litlujólin voru á sínum stað og þorrablótið sem alltaf er mjög vel sótt.

Jóna Sigurðardóttir fór yfir reikninga félagsins sem voru samþykktir.

Jóna útskýrir ársreikninga.
Jóna útskýrir ársreikninga.

Árgjald félagsins verður áfram 2.500 krónur og afsláttarbókin síðan í fyrra er enn í gildi.

Stjórnin lagið til að fjölgað yrði um tvo í stjórn og tillaga var borin upp um að það yrðu þeir Hjörtur B. Jónsson og Ingvi Þorkelsson. Stjórnin fyrir næsta ár lítur þá svona út: Ásberg Lárentsínusson formaður, Hjörtur B. Jónsson varaformaður, Jóna Sigurðardóttir gjaldkeri, Guðfinna Karlsdóttir ritari, Danielína Jóna Bjarnadóttir, Bjarni Valdimarsson og Ingvi Þorkelsson.

FEBÖ efndi til tveggja ferða á árinu, önnur ferðin var farin á Unaðsdaga í Stykkishólmi og hin var dagsferð um Reykjanesið sem var sannkölluð ævintýraferð.

Á þessu ári (2016) verður farið til Færeyja en sú ferð er löngu uppseld. Hin árlega dagsferð verður farin til Vestmannaeyja þann 14. júní.

Ásberg lauk aðalfundi með hugleiðingum um kjör aldraðra sem er efni í annan pistil.

Það má með sanni segja að í Félagi eldri borgarar í Ölfusi sé blómlegt og skemmtilegt starf, þar sem flestir ef ekki allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 

Similar Posts

  • Ungur nemur – gamall temur

    Fimmudaginn 17. október var nemendum 9. bekkjar í heimilisfræðivali í Grunnskólanum í Þorlákshöfn boðið að koma á Níuna (Egilsbraut 9) og gera slátur með starfsmönnum, eldri borgurum í dagdvöl og þeim sem nýta sér þjónustu mötuneytisins.Nemendur þáðu boðið með þökkum og skunduðu á fund eldri borgara og starfsfólks Níunnar ásamt Berglindi Ósk Haraldsdóttur stuðningsfulltrúa. Sumir…

  • Allt komið á fullt á 9-unni og hjá FEBÖ

    Haustið er komið og vetrarstarfið hafið á 9-unni og þar með hjá Félagi eldriborgara í Ölfusi. Sitthvað nýtt verður á döfinni og annað með hefðbundnum hætti. Helstu nýjungar eru: Útskurðarnámskeið undir leiðsögn Valdimars Ingvasonar. Það verður á fimmtudögum kl. 9. Silkimálun er líka nýjung og Eyjólfur Veturliði Jónsson kennir. Námskeiðið er klukkan 13 á föstudögum. Tiffaný…

  • Fréttir af Níunni 2. des. 2016

    Vetrarstarfið á Níunni hefur að mestu verið hefðbundið en leikfimi undir stjórn Hildigunnar sjúkraþjálfara er þó ný af nálinni. Leikfimiæfingarnar þykja mjög góðar og gárungar segja; að nú sé fólk farið að geta klippt á sér táneglur og pússað hælana eftir að hafa stundað leikfimina það sem af er vetri enda er aðsóknin mikil. Boccia…

  • Vortóneikar Tóna og Trix

    Það var létt og skemmtileg stemmning á tónleikum sönghópsins Tóna og Trix í Ráðhúsi Ölfuss á fimmtudagkvöld 2. júní. Salurinn var troðfullur af fólki.Hljómsveitin sem spilaði undir sönginn var ekki af verri endanum. Yngstu meðlimir sveitarinnar voru þeir Jakob Unnar Sigurðarson sem spilaði á bassa og Þröstur Ægir Þorsteinsson á trommur. Þeir eru nemendur í…

  • Þorrablót 2017

    Þorrablót Félags eldri borgara í Ölfusi var haldið á bónadag 20. febrúar í sal Níunnar. Viðgerðir og endurbætur hafa staðið yfir á gólfinu í salnum síðan 3. janúar og var kappkostað við að ljúka verkinu fyrir blótið. Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður vígði nýtt hljóðkerfi en hún var veislustjóri að venju. Þorramaturinn kom frá Kjarnafæði sem Beata…