Menningarferð í votviðri

Menningarferð Norræna félagsins í Ölfusi um Rangárvelli var farin 3. október 2026. Spáð var úrhellisrigningu þennan dag, en það kom ekki í veg fyrir skemmtilega ferð.

Fyrsti viðkomustaðurinn var Húsið á Eyrarbakka, sem heyrir undir Byggðasafn Árnesinga. Þar tók Lýður Pálsson á móti hópnum. Hann tók við safninu árið 1992 og eitt af fyrstu verkum hans var að flytja það á Eyrarbakka.

Lýður nefndi að Sigurður Ósmann Jónsson, sem var með í ferðinni, hefði áður verið byggingarfulltrúi á Eyrarbakka og tekið þar út brunavarnir. Hann lýsti því hvernig Sigurður hefði kveikt í blaðsnifsi og borið það upp að reykskynjara til að athuga hvort hann virkaði.

Lifandi sögur af Húsinu

Lýður rakti merkilega sögu Hússins, sem var reist árið 1765 fyrir kaupmanninn og athafnamanninn Jens Larsen. Hann sagði skemmtilega frá Jens, kaupmönnunum sem komu á eftir honum og öðrum íbúum hússins.

Það var fróðlegt að heyra söguna af Flóapiltinum Ásgrími Jónssyni listmálara, sem var komið í vist hjá Nielsen-hjónunum í Húsinu, einu helsta menningarheimili Suðurlands. Hann dvaldi þar á árunum 1892–1894 og eyddi frítíma sínum í að teikna eftir myndum á veggjunum og í dönskum blöðum. Frú Nielsen tók eftir þessu og keypti handa honum vatnsliti og pensla. Í kjölfarið ákvað hann að gerast listmálari.

Ásgrímur kom síðar aftur í Húsið og dvaldi þar um tíma. Þá málaði hann mynd af hluta stofunnar. Málverkið var nýlega selt fyrir margar milljónir króna á uppboði. Að sögn Lýðs á Listasafn Íslands um tvö þúsund málverk og vatnslitamyndir eftir Ásgrím.

Drottningin í heimsókn

Ein af sögum Lýðs verður að fá að fylgja með, enda fjallar hún um heimsókn sem var honum sérstaklega minnisstæð.

Vorið 1998 fékk Lýður símtal frá forsætisráðuneytinu og var spurður hvort hægt væri að fá Húsið lánað 15. maí sama ár vegna heimsóknar Margrétar Þórhildar Danadrottningar og Henriks prins. Drottningin var í óopinberri heimsókn í boði forsetahjónanna Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Lýður jánkaði beiðninni án þess að hugsa sig um.

Drottningin var stödd hér á landi vegna Listahátíðar og var viðstödd opnun sýningar á kirkjuklæðum, höklum og kórkápum sem hún hafði hannað.

Altaristaflan í Eyrarbakkakirkju

Drottningin og Henrik prins fóru á Eyrarbakka til að skoða altaristöfluna í Eyrarbakkakirkju. Taflan er gjöf Kristjáns IX og var máluð árið 1891 af konu hans, Louise, langalangömmu Danadrottningar, eins og fram kemur á töflunni.

Magnús Karel oddviti sagði sögu kirkjunnar og Lýður sagði frá Húsinu og Assistentahúsinu. Báðum fannst erfitt að flytja mál sitt á dönsku fyrir framan svo tigna gesti. Auk drottningarinnar og prinsins voru þar forsetahjónin og Davíð Oddsson ásamt konu sinni, Ástríði Thorarensen.

Lýður sagðist ekki hafa lokið ræðu sinni og hefði verið þakklátur þeim Davíð og Ólafi Ragnari fyrir að taka við.

Veislan í Húsinu

Í stássstofu Hússins var boðið upp á tónleika. Jónas Ingimundarson píanóleikari var fenginn til að finna söngkonu og fékk Árnýju Einarsdóttur, kornungan söngnema, til að syngja. Þau fluttu lög eftir tónskáld úr héraði: Pál Ísólfsson, Ísólf Pálsson, Guðmund Nielsen og Sigfús Einarsson. Að sögn Lýðs voru tónleikarnir dásamlegir.

Eftir fordrykk og tónleika var kvöldverður í bláu stofunni fyrir „fína“ fólkið, en aðstoðarfólkið og Lýður borðuðu í borðstofunni – og þar var meira fjör!

Má drottningin reykja?

Lýður minntist einnig á skondið atvik. Nokkrum dögum fyrir veisluna hafði ráðuneytisstjórinn samband við hann og spurði hvort hægt væri að aftengja öryggiskerfið meðan á heimsókninni stæði svo drottningin gæti reykt.

Að sögn Lýðs var mikið reykt og allir öskubakkar á Eyrarbakka voru sóttir í Húsið. Brunavarnalögum var þó fylgt og tveir brunaverðir frá Brunavörnum Árnessýslu stóðu vörð.

Lýður sagðist geta talað allan daginn um heimsóknina, sem hefði reynt á en verið bráðskemmtileg.

Súpa og brauð í Vatnsholti

Næst lá leiðin að Vatnsholti, þar sem beið okkar súpa, brauð og kaffi. Rigningin hafði heldur aukist og buldi á bílrúðunum. Það var því notalegt að komast úr rigningunni og inn í hlýjuna.

Að loknum góðum viðgjörningi héldum við áfram að Odda á Rangárvöllum.

Á slóðum Oddverja

Oddi er frægur kirkjustaður sem á sér langa og merkilega sögu. Þar tók Friðrik Erlingsson, rithöfundur og stjórnarmaður í Oddafélaginu, á móti okkur. Oddafélagið var stofnað 1. desember 1990 og er félag áhugafólks um endurreisn menningar- og fræðaseturs að Odda.

Friðrik sagðist hafa vonast til þess að verkefni sem félagið hefði unnið að í áratug yrði tilbúið áður en við kæmum, en því miður hefði það ekki tekist. Um er að ræða stóra sögusýningu í Oddalundi, trjálundi fyrir neðan kirkjuna. Þar hefur verið útbúið hringlaga svæði með stólpum í hálfhring. Á þeim verða settar upp níu stórar ljósmyndir sem sýna Oddverja á miðöldum. Fyrirsæturnar eru Rangæingar í miðaldabúningum.

Á myndunum verða meðal annars Sæmundur á æskuárum, foreldrar hans og afkomendur. Þar verður einnig Jón Loftsson ásamt ungum Snorra Sturlusyni, sem lærir að draga til stafs undir leiðsögn Jóns, fóstra síns.

Friðrik hélt fróðlegt og skemmtilegt erindi um sögu Oddastaðar, þar sem Sæmundur Sigfússon (1056–1133) var í aðalhlutverki. Meðal helstu markmiða Oddafélagsins er að halda minningu Sæmundar á lofti, stuðla að rannsóknum á ævi hans og verkum og miðla sögu Oddastaðar og Oddverja. Félagið vinnur einnig að endurreisn menningar- og fræðaseturs að Odda fyrir almenning og fræðimenn.

Friðriki tókst vel að miðla þessari merku sögu.

Sveitabúðin og Langbrók

Eftir heimsóknina að Odda lá leiðin í Langbrók með viðkomu í Sveitabúðinni, þar sem seldur er alls konar íslenskur varningur sem höfðar til ferðamanna.

Vel var tekið á móti okkur í Langbrók, þar sem við sátum og sötruðum kaffi eða aðra drykki. Vegna veðursins slepptum við öllum fyrirhuguðum göngutúrum og héldum okkur í skjóli, ýmist í rútunni eða góðum húsakynnum.

Kvöldverður og heimferð

Síðasti áfangastaðurinn var Hótel Selfoss, þar sem við borðuðum lambakjöt. Þar bættust í hópinn fleiri félagsmenn sem höfðu verið uppteknir um daginn.

Það sem kom mér mest á óvart var hversu stóran sess menningin skipaði í Húsinu á Eyrarbakka. Saga Odda vakti líka sérstakan áhuga minn og heimsóknirnar á þessa tvo staði skildu mikið eftir sig.

Heim komum við á mjög kristilegum tíma, rétt um hálfníu. Þrátt fyrir votviðrið var þetta hin skemmtilegasta ferð í sérlega góðum félagsskap. Menningarnefndin — Halldór, Ester, Erna, Ármann og Þuríður — fær bestu þakkir fyrir vel skipulagða og ánægjulega ferð.

 

Similar Posts