Hleyptu smá sólskini inn í lífið með íslenska grænmetinu okkar! Einhvern veginn svona auglýsir Sólskinsbúðin á Flúðum. Og það var einmitt það sem mig langaði að gera þegar ég fór ásamt vinkonu minni í búðina í sumar.
Eftir smá rölt um búðina, með körfuna fulla af grænmeti, kom ég auga á hillur með ýmsu gúmmelaði. Á leið minni að hillunum festust augun við brauðkörfu sem ég kannaðist við.
„Þetta er brauðkarfan mín – ég átti hana,“ sagði ég við vinkonu mína og bætti við: „Ef nafnið Sigurbjörg stendur undir körfunni, þá er það sönnun þess.“
Ég lyfti körfunni og á botninum stóð: Sigurbjörg ´92.

„Ég hlýt að hafa farið með hana á Nytjamarkaðinn á Selfossi og þau hafa sennilega keypt hana þar,“ sagði ég við vinkonu mína.
Hún stakk upp á að ég spyrði búðareigandann hvort ég gæti keypt brauðkörfuna. Ég hikaði. Ég skrifaði þó hjá mér netfang eigandans, sem hékk uppi á vegg, ef ég skyldi ákveða að láta verða af því.
Nokkrum dögum fyrr hafði ég leitað að brauðkörfunni heima hjá mér því ég hafði not fyrir hana. Ég var viss um að ég hefði sett hana inn í geymslu, en fann hana ekki. Þá grunaði mig að hún hefði farið á Nytjamarkaðinn með mörgu öðru þegar ég minnkaði við mig húsnæði.
Það var oft erfitt að ákveða hvað ég ætti að gera við allt sem ég hafði sankað að mér í gegnum tíðina. Stundum fór ég í ham, sérstaklega þegar fólk sagði við mig að þetta væru bara dauðir hlutir og ég ætti að spyrja sjálfa mig hvort ég hefði not fyrir þá.
Ég var leið yfir að hafa látið brauðkörfuna frá mér. Ég hafði notað hana mikið og hún hafði tilfinningalegt gildi fyrir mig.
Sigurbjörg var nemandi minn í fullorðinsfræðslu í Hvammshlíðarskóla á Akureyri. Hún var með hrörnunarsjúkdóm og var daufblind. Hún heyrði illa og stundum var erfitt að skilja það sem hún sagði. Þegar hún heyrði ekki það sem sagt var, voru orðin rituð á ennið hennar. Kennararnir sem kenndu henni höfðu hver sitt merki svo hún þekkti þá. Mitt merki var tvö strik á kinn.
Hún var mikill karakter og alveg ótrúlega minnug á allt og alla. Við héldum góðu sambandi eftir að ég flutti frá Akureyri og allt þar til hún dó. Í jólabréfum sínum, eða þegar ég heimsótti hana, spurði hún um dætur mínar, tengdasyni og barnabörn. Hún vissi nöfnin á þeim öllum og mundi hvernig hagir þeirra höfðu verið þegar við heyrðumst síðast.
Ég keypti af henni nokkrar brauðkörfur og gaf dætrum mínum og mömmu. En þessa brauðkörfu hafði ég ekki keypt. Hún var kveðjugjöf frá Sigurbjörgu þegar ég flutti frá Akureyri.
Það er bara óskiljanlegt að ég hafi látið þessa brauðkörfu frá mér. En stundum gerir maður margar gloríur þegar maður stendur í flutningum. Ef til vill er þó eitthvað jákvætt og fallegt við það að brauðkarfan hefur fengið framhaldslíf og gerir gagn.
En ég dauðsé eftir henni.
SG
