„Þetta var mitt konungsríki“

Kaffispjall við Elínu Írisi Fanndal Jónasdóttur um fyrstu bókina hennar, Heima er…

Hún var glaðbeitt og brosandi þegar ég opnaði dyrnar og bauð henni inn. Hún stóð þarna með bók í hendi og rétti mér hana. Ég tók við bókinni og strauk kápuna. Ofarlega á henni var Spákonufell og neðar kletturinn Einbúi með kórónu á toppnum. Í miðjunni var titill bókarinnar saumaður með krosssaumi, Heima er…

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir var komin til mín í kaffispjall um fyrstu bókina sína. Á meðan hún hengdi kápuna sína á snaga spurði ég hana hvernig hefði verið að fá bókina í hendur.

„Dásamlegt!“

Þegar við vorum búnar að koma okkur fyrir og hella kaffi í bollana sagði Elín aftur hvað það hefði verið ótrúlegt að halda á bókinni og finna að henni hefði tekist þetta. Með gleðinni fylgdi þó svolítill kvíði. „Maður er náttúrlega að leggja ‚barnið‘ sitt í dóm annarra.“ Elín sagðist hafa skrifað af hispursleysi og hvorki dregið neitt undan né fegrað það sem gerðist.

Minningarnar urðu að bók

Elín Fanndal og Davíð Hörgdal Stefánsson,.

Erfið bernska hafði haft áhrif á líf Elínar árum saman. Að hvatningu bestu vinkonu sinnar, sem hún hafði trúað fyrir reynslu sinni, settist hún niður með spjaldtölvuna og byrjaði að skrifa um áföllin. Hún byrjaði á erfiðu minningunum. Sem barn varð hún ítrekað fyrir kynferðisbrotum og minnist klúrs talsmáta, niðurlægingar og áreitni. Hún varð aftur fyrir kynferðisbrotum á unglingsárunum. Þá helltist skömmin yfir hana. Henni fannst þetta allt vera sér að kenna og sú tilfinning var henni þungbær.

Hún skrifaði minningarnar í belg og biðu, eftir því sem þær komu upp í hugann. Fyrr en varði hafði hún skrifað mörg þúsund orð og þeim átti eftir að fjölga. Mikill tími fór í að flokka efnið, raða atburðunum í tímaröð, leiðrétta og leita heimilda. Úr varð bók um bernsku hennar og unglingsár. Þar segir hún einnig frá því þegar hún skildi við fyrri mann sinn og kynntist núverandi eiginmanni sínum, Daða Þór Einarssyni.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að gefa þessar minningar út á bók?

Þegar Elín fór að raða efninu saman fann hún að sagan ætti erindi við almenning. Henni fannst mikið hafa verið fjallað um konurnar sem fóru í „ástandið“ og vildi segja frá fjölskyldunum sem urðu eftir.

Elín var fimm ára árið 1968 þegar móðir hennar fór frá eiginmanni sínum og þremur börnum, giftist bandarískum hermanni og flutti til Bandaríkjanna. Hún kom öðru hverju til Íslands en hitti börnin lítið. Elín segir að faðir hennar hafi hamlað samskiptunum og að mikil reiði hafi verið á milli foreldranna, meðal annars vegna þess að móðir hennar giftist bandarískum hermanni.

Í dagdraumum Elínar var móðir hennar drottning í útlöndum sem myndi brátt koma, sækja hana og fara með hana heim til sín. Elín setti móður sína á háan stall og tók alltaf málstað hennar þegar illa var talað um hana í þorpinu. Móðir hennar átti eftir að falla af þeim stalli með braki og brestum þegar Elín var komin á unglingsár.

Einbúinn var hennar konungsríki

Hvernig varð heiti bókarinnar til og hvaða merkingu hefur það fyrir þig?

Elín byrjaði á að segja mér frá kápunni. Vinkona hennar málaði olíumálverkið sem prýðir hana. Á myndinni má sjá allar árstíðirnar bæði í Spákonufelli, sem Elín kallar drottningu Skagastrandar, og í Einbúanum. Kórónan á klettinum táknar Elínu sjálfa sem barn.

Þegar Elínu leið illa og veður var gott fór hún upp á Einbúann. Þar sat hún og horfði yfir þorpið eða lá og var ein með sjálfri sér. Þar fékk hún frið frá áreitinu, krökkunum og ráðskonunum sem komu og fóru eftir að móðir hennar fór. Á Einbúanum breytti hún sér í prinsessu í dagdraumunum og réð yfir Skagaströnd. „Þetta var mitt konungsríki.“

Móðir Elínar var mikil handverkskona og eftir hana liggja mörg falleg verk. Elín vildi heiðra hana með því að hafa útsaum á bókarkápunni. Myndin er máluð á java og titillinn saumaður í málverkið. Hann vísar til gömlu útsaumsmyndanna með orðunum Heima er best. Elín lætur lesendum eftir að botna setninguna Heima er…

Afi var kletturinn

Hvað fannst þér erfiðast að skrifa um?

Það tók mest á Elínu að skrifa um kynferðisbrotin og segja heiðarlega frá móður sinni. Fjórtán ára flutti hún til hennar og bjó hjá henni á Keflavíkurflugvelli í einn vetur. Þá kynntist hún móður sinni eins og hún var og það reyndist henni mikið áfall. Að sögn Elínar drakk móðir hennar mikið, bjó við ofbeldi í sambandi sínu og átti erfitt með að sinna móðurhlutverkinu.

Hvað var ánægjulegast að skrifa um?

Það stóð ekki á svarinu. „Það var að skrifa um afa, því hann var kletturinn í öllu brimrótinu.“

Elín segir afa sinn hafa verið grásleppukónginn í þorpinu flest árin. Hann tók hana oft með sér út á sjó og kom henni til varnar þegar amma hennar kom illa fram við hana. Elín telur að amma hennar hafi látið hana gjalda þess hve lík hún var móður sinni. Systkini Elínar áttu heldur ekki upp á pallborðið hjá ömmunni. Þegar þau nálguðust húsið kallaði hún út um gluggann og sagði þeim að snauta sér burt.

Breyttist bókin mikið frá fyrstu hugmynd að lokaútgáfu?

Elín segir að grunnhugmyndin hafi haldist. Hún segir frá lífi sínu uppi á Einbúanum og skrifar í þriðju persónu. Í bókinni er hún alltaf kölluð stúlkan, sama á hvaða aldri hún er. Þegar leið á vinnuna tók Elín út efni sem henni fannst best að eiga fyrir sig.

Hvað vonarðu að sitji eftir hjá lesendum þegar þeir hafa lokið lestrinum?

Elín vonar að lesendur sjái líka hvað líf hennar hefur verið gott og innihaldsríkt. Hún vill að þeir kynnist þessari hlið á „ástandinu“ og sjái hvaða afleiðingar brottför móður hennar hafði fyrir börnin og fjölskylduna.

Ætlarðu að halda áfram að skrifa?

„Ég er þegar byrjuð!“ Í þetta sinn verður það skáldsaga í léttum dúr.

Þegar Elín kveður gengur hún hnarreist út með bros á vör.

 

Tengdar færslur