Óvæntur fundur með Bjarna Joensen á bókasafninu

Bókaskil

Ég arkaði inn á Bæjarbókasafn Ölfuss í köldu og björtu nóvemberveðri með Gyrði Elíasson og Þórarin Eldjárn undir handleggnum. Ég ætlaði að skila þeim. Annar hafði fengið mig til að gráta en hinn til að hlæja.

Bók Gyrðis, Ótíð í víti, var svo átakanleg og einstaklega vel skrifuð, en Þórarinn kom mér til að skella upp úr hvað eftir annað með ljóðabók sinni Eitt og annað. Stórkostlegir rithöfundar báðir tveir.

Málverkasýning undir stiganum

Ég tók eftir því að veggir Gallerís undir stiganum voru þaktir málverkum. Þarna var málverkasýning. Listamaðurinn var að segja gesti frá verkum sínum. Áður en gesturinn fór bað hann listamanninn að taka frá eitt málverk fyrir sig.

Ég kastaði kveðju á listamanninn, Bjarna Joensen, sem er nágranni minn, og spurði hvort ég mætti taka mynd af honum. Því jánkaði hann og sagði að það væri guðvelkomið af því að þetta væri ég! Ég spurði Bjarna hvort hann væri enn að mála. Svarið var að hann hefði dregið úr því vegna þess að sjónin væri farin að daprast.

Öll voru þau olíumálverk. Þau nýjustu voru abstrakt en þau eldri voru landslagsmyndir, margar frá Færeyjum, Vestmannaeyjum, Eskifirði og Þorlákshöfn. Bjarni hefur sterkar taugar til allra þessara staða.

Þegar gosið varð á Heimaey árið 1973 neyddust Bjarni og fjölskylda til að yfirgefa nýbyggt hús sitt og flytja austur á land. Síðar lá leiðin til Þorlákshafnar, árið 1985.

Bjarni og Kjarval

Meðan við röltum um sýninguna sagði Bjarni allt í einu að hann hefði kynnst Jóhannesi S. Kjarval þegar hann var átta ára. Þá var hann í heimsókn hjá foreldrum sínum í Reykjavík (Bjarni ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Eskifirði) og með æskuvini sínum skottaðist hann niður Laugaveginn.

Systir æskuvinar hans afgreiddi í bakaríi og þar komu þeir við til að sníkja sér eitthvað góðgæti til að maula. Systirin benti þeim á að fara í heimsókn til manns hinum megin við götuna. Maðurinn hefði gaman af að fá þá í heimsókn af því að hann væri svo mikið einn.

Þeir tóku hana á orðinu og fóru yfir í vinnustofu Kjarvals. Kjarval bauð strákunum inn og ávarpaði þá með sinni djúpu rödd og spurði erinda. Þeir spurðu hvort þeir ættu að fara í bakaríið fyrir hann; þeir væru einmitt að koma þaðan og vísuðu í systurina. Listmálarinn óskaði eftir því að þeir keyptu tvo snúða og tvö vínarbrauð. Þeir réttu honum bakkelsið og hann bauð þeim að velja sér annað hvort snúð eða vínarbrauð.

Og þegar strákarnir kvöddu þjóðargersemina rétti hann þeim sitthvora teikninguna sem hann hafði gert á meðan þeir skruppu í bakaríið sem þakklætisvott. Strákarnir höfðu engan áhuga á þessu rissi og afþökkuðu pent. Bjarni segist oft hugsa um þetta enn. Teikningarnar væru mikils virði í dag.

Síðar átti hann eftir að kynnast Kjarval fyrir austan, þar sem listmálarinn átti lítið hús og lítinn bát á Borgarfirði eystri. Og náttúran var hans vinnustofa.

Listamaðurinn Bjarni

Sjálfur hefur Bjarni málað frá barnsaldri og verið iðinn við pensilinn alla tíð. Þegar hann var á sjó nýtti hann fríin til listsköpunar. Málaralist hefur hann aldrei lært en mikið listfengi er í ætt hans. Hann átti frændur sem kunnu til verka og hann lærði af þeim.

Hann er ekki frá því að færeyska blóðið sem rennur í æðum hans hafi átt sinn þátt í því að hann varð listmálari. Það gæti alveg passað. Mér finnst færeysk málaralist falleg.

Auk þess sagðist hann hafa rutt brautina fyrir aðra listamenn með því að vera fyrstur til að hengja upp verk sín í Galleríi undir stiganum. Sýning hans stendur til loka nóvembermánaðar 2026.

Kveðjustund

Ég kvaddi listamanninn og óskaði honum til hamingju með sýninguna. Hann þakkaði mér fyrir og spurði svo: „Hvað heitirðu aftur?“

„Ég er nágranni þinn,“ svaraði ég. „Sigríður Guðnadóttir á Mánabraut 2, konan hans Sigga.“

„Já, hvernig læt ég! Siggi er fínn náungi.“

Tengdar færslur