Velheppnað vinabæjamót
Vinátta og samstarf
Nýafstaðið vinabæjamót Norræna félagsins í Ölfusi, í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus, sem haldið var dagana 1.–5. júlí 2026, heppnaðist einstaklega vel. Þátttakendur komu frá Vimmerby í Svíþjóð og Kauhava í Finnlandi. Fulltrúi bæjarstjórnarinnar í Kauhava, Vesa Rantala, kom til að kynna sér framkvæmd vinabæjarmótsins og jafnframt að bjóða formlega til næsta vinabæjarmóts sem verður haldið í Kauhava árið 2028.
Vinabæirnir Rygge í Noregi og Skærbæk í Danmörku tóku því ekki þátt að þessu sinni vegna ýmissa aðstæðna.
Vinabæjamótin eru mikilvægur vettvangur þar sem fólk hittist, deilir reynslu, kynnist menningu og samfélögum Norðurlandanna, styrkir vináttubönd sem hafa byggst upp í gegnum árin og mynda ný.
Gestirnir komu síðdegis á miðvikudegi og voru boðnir hjartanlega velkomnir við móttöku í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Þar var boðið upp á íslenska kjötsúpu og pönnukökur.
Móttaka og heimsókn í Þorlákskirkju

Dagskráin hófst með móttöku Sveitarfélagsins Ölfuss í Versölum. Þá var farið í Þorlákskirkju þar sem gestir fengu að skoða kirkjuna og njóta fallegra tóna.
Ester Ólafsdóttir organisti og Daði Þór Einarsson básúnuleikari léku fyrir gesti á orgel og básúnu „Kvöldsiglingu“ eftir Gísla Helgason og hið þekkta sænska lag „Vem kan segla förutan vind?“ Í hópi Svía var tónlistarkonan Malin Ahnell sem settist við flygilinn og lék sænskt lag. Svíarnir tóku síðan undir með fallegum söng.
Malin og Daði Þór áttu eftir að spila oft saman á meðan á mótinu stóð. Það var einmitt tónlistin sem varð einn af þeim fallegu þráðum sem tengdu þátttakendur saman.
Mótsgestum var boðið í skoðunarferð um Ölfusið og þeim sýnd sú mikla þróun og uppbygging sem átt hefur sér stað undanfarin ár í sveitarfélaginu. Tvö öflug fyrirtæki voru skoðuð; First Water, sem stundar landeldi á laxi, og Vaxa Technologies á Hellisheiði, þar sem framleiðsla á smáþörungum fer fram.
Eftir rútuferðina var farið í Íþróttamiðstöðina og gestum boðið að fara í sund.
Dagur sveitarfélagsins, eins og þessi dagur var nefndur í dagskránni, lauk með glæsilegu borðhaldi á Hafinu bláa.
Auk góðs matar og fallegra tóna frá djassleikurum var það kvöldbirtan sem heillaði gestina hvað mest. Hún flæddi inn um gluggana og speglaðist í hafinu annars vegar og Ölfusá, vatnsmestu á landsins, hins vegar. Þetta einstaka útsýni varð fljótt vinsælt myndefni meðal þátttakenda.
Vinalundur – tákn vináttu og tengsla
Það var falleg og táknræn stund þegar þátttakendur vinabæjamótsins gróðursettu fimm reynitré í nýútbúnum vinalundi í gróðurreit Norræna félagsins í Ölfusi, innan við Skýjaborgir.

Trén fimm standa sem tákn fyrir vinabæina og þau munu vaxa og dafna líkt og sú vinátta og samvinna sem hefur myndast á milli þeirra í gegnum árin.
Sigríður Guðnadóttir gróðursetti tré fyrir hönd Þorlákshafnar, Ann-Britt Frost fyrir hönd Vimmerby og Vesa Rantala fyrir hönd Kauhava. Fyrir hönd Rygge og Skærbæk gróðursettu þær Jeanette Krusell og Gunnilla Berg.
Vinalundurinn verður þannig varanleg minning um vinabæjasamstarfið og þau tengsl sem hafa myndast milli fólks frá þessum fimm norrænu samfélögum.
Menningarperlur og náttúruupplifanir á Suðurlandi
Næstu tveir dagar voru nýttir til að sýna gestum fallegar náttúruperlur og menningarstaði á Suðurlandi. Hannes Hjartarson var leiðsögumaður í rútuferðunum og miðlaði af mikilli þekkingu og fróðleik um það sem fyrir augu bar.

Fyrri daginn var farið í Skálholtsdómkirkju. Þar fengu gestir leiðsögn um kirkjuna og fengu smjörþefinn af tónlistarmenningu staðarins, þar sem Kammersveitin Elja var að æfa fyrir Sumartónleikana í Skálholti. Síðan lá leiðin í Vínstofu Friðheima, og að Gullfossi og Geysi.
Daginn eftir var farið á Þingvöll og að Hakinu. Þar fengust gestir fræðslu um jarðsögu staðarins og nutu stórkostlegs útsýnis yfir Þingvallavatn. Veðrið lék við hópinn og fjallstopparnir allt í kring voru baðaðir sólargeislum.
Leiðsögumaðurinn gekk með hópnum niður Almannagjá að Lögbergi. Daði Þór blés þar lúður „Öxar við ána“ og fólk tók undir í söng sem hljómaði um vellina alla. Hópurinn var staddur á einum merkasta stað þjóðarinnar, þar sem náttúran sjálf skapaði einstök hljómgæði.
Í Þingvallakirkju settist Malin við orgelið og lék „Fögur er foldin.“ Íslendingar og Svíar sameinuðust í söng og sungu samtímis á sínu móðurmáli.
Hátíðarkvöldverður

Hátíðarkvöldverðurinn hófst með fordrykk og myndasýningu frá fyrri vinabæjamótum. Heiðursgestir kvöldsins voru annars vegar Grétar Ingi Erlendsson, fulltrúi sveitarfélagsins, og hins vegar Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður sem situr í Vestnorræna ráðinu. Hún sagði frá starfsemi ráðsins.
Formenn Norrænu félaganna í Vimmerby og Þorlákshöfn, Ann-Britt Frost og Sigríður Guðnadóttir, fluttu ræður. Hefð er fyrir því að syngja þjóðsöngva landanna á vinabæjamótum. Að þessu sinni var hins vegar leikið undir á píanó og básúnu.
Svíar fluttu fallega söngva úr verkum Astrid Lindgren, enda er Vimmerby fæðingarbær hennar. Aðalbjörg Halldórsdóttir og Ársæll Guðmundsson fluttu síðan nokkur ljúf lög sem vöktu mikla ánægju meðal gesta.
Hófinu lauk á fallegan hátt þegar allir gestir röðuðu sér í hring, tóku saman höndum og sungu „Hin gömlu kynni gleymast ei,“ fyrst á sænsku og síðan á íslensku.
Í þakkarræðu fyrir hönd gesta frá Vimmerby þakkaði Leif Larsson, bæjarfulltrúa í Vimmerby, fyrir frábærar móttökur og glæsilega framkvæmd mótsins. Hann sagði að dagskráin hefði verið bæði fjölbreytt og vel skipulögð.
Hann lýsti jafnframt aðdáun sinni á þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu frá því hann sótti síðast vinabæjamót árið 2017, bæði hvað varðar íbúðaruppbyggingu og atvinnulíf. Hann sagði fyrirtækjaheimsóknirnar hafa verið sérlega áhugaverðar og veitt góða innsýn í fjölbreytt atvinnulíf sveitarfélagsins.
Leif lagði ríka áherslu á mikilvægi vinabæjamótanna í samstarfi vinabæjanna. Þar gefst tækifæri til að kynnast, rækta vináttuna og byggja upp traust tengsl sem styrkjast með árunum.

Vináttubönd styrkjast
Á þessum fimm dögum einkenndist samveran af gleði, tónlist, söng, náttúruupplifun, góðum mat og líflegum samræðum. Allt þetta átti þátt í að styrkja þau vináttubönd sem hafa byggst upp í gegnum árin og jafnframt mynduðust ný vináttubönd.
Þakklæti
Norræna félagið í Ölfusi vill færa öllum þeim sem lögðu hönd á plóg innilegar þakkir.
Sérstakar þakkir fá Sveitarfélagið Ölfus, fyrirtæki og stofnanir sem tóku á móti gestunum, listafólkið sem auðgað dagskrá með tónlist og söng og allir þeir sjálfboðaliðar sem lögðu fram ótal vinnustundir við undirbúning og framkvæmd mótsins.
Það er dýrmætt að eiga svona frábæra félaga í Norræna félaginu í Ölfusi sem eru alltaf boðnir og búnir þegar til þeirra er leitað. Án þeirra hefði ekki verið hægt að halda jafn glæsilegt vinabæjamót og raun bar vitni.
Vináttan sem verður til á vinabæjamótum lifir áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.

