Guðsþjónusta var haldin í Þorlákskirkju 8. nóvember 2026 þar sem þess var minnst að 75 ár eru liðin frá því að hér myndaðist þéttbýliskjarni. Þá voru fjórtán manns skráðir með búsetu í byggðinni.
Ræðumaður dagsins var Einar Sigurðsson skipstjóri, sem hefur búið hér í marga áratugi. Hann flutti til þorpsins
nítján ára gamall og hóf þar lífsbaráttu sína á sjó og landi, svo hann hefur sannarlega horft upp á miklar breytingar. Í ræðunni rifjaði hann upp hvernig lífið gekk fyrir sig á þessum árum í starfi og leik og sagði frá ýmsum skemmtilegum uppákomum. Kirkjugestir hlógu og sumir tóku undir og sögðu: „Þetta er alveg satt!“
Kór Þorláks- og Hallasóknar, söng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur organista. Feðgarnir Daði Þór Einarsson og Kristján Daðason léku á básúnu og trompet í inngöngusálminum og í nokkrum sálmum sem kórinn söng.
Halla Kjartansdóttir lýsti upplifun sinni á fésbókarsíðu sinni: „Góð messa í Þorlákskirkju í morgun. Einar Sig. hélt frábæra ræðu, tónlistin var mjög flott, hélt stundum að þakið færi af kirkjunni svo hátt var sungið og leikið, en það gerðist ekki.“
Sr. Sigrún Margrét Óskarsdóttir þjónaði fyrir altari. Hún þakkaði fyrir þessi ár og bað fyrir þeim komandi.
Sigmar Örn Sigþórsson var í messunni og gerir henni og ræðu Einars Sigurðssonar góð skil á Hamingjuhöfn.
„Mér hefur aldrei leiðst hérna einn einasta dag“ – 75 ára byggðar í Þorlákshöfn minnst
