Stefnumót við eldra fólk í Ölfusi

Hugmynd um félagsheimili eldri borgara vakti mikla ánægju á samráðs- og upplýsingafundi með Elliða Vignissyni bæjarstjóra fimmtudaginn 5. nóvember. Gangi áformin eftir gætu framkvæmdir hafist strax eftir áramót.

Eldri borgarar streymdu í Versali í Ráðhúsi Ölfuss fyrir hádegi þennan fimmtudag. Elliði hafði boðað til fundarins til að kynna vöxt og uppbyggingu í sveitarfélaginu og þau tækifæri sem fram undan eru. Jafnframt ætlaði hann að ræða mál eldri borgara, miðla upplýsingum og kalla eftir hugmyndum þeirra og ábendingum.

Ég var spennt að heyra umræður um mál eldri borgara, hvað bæjarstjórinn hefði að segja og hvaða hugmyndir og ábendingar fundarmenn kæmu með.

Í minni salnum í Versölum, þar sem áður var Ráðhúskaffi, ríkti kaffihúsastemning. Bláir dúkar voru breiddir yfir fjögurra manna borð og kaffibollar stóðu á borðunum. Þegar eldri borgararnir höfðu fengið sér randalínur og hellt kaffi í bolla tók Elliði til máls.

Hjúkrunarheimili

Elliði sagði að hópur eldri borgara hefði alltaf verið fjölbreyttur. Nú væri heilsa hópsins betri og bæði geta og vilji til þátttöku í félagsstarfi meiri. Hann væri tilbúinn að bregðast við þeirri þróun.

Að sögn Elliða væri við ramman reip að draga í málum hjúkrunarþjónustu. Sveitarfélagið réði þar engu en gæti þó beitt sér, og vilji væri til þess. Þegar hann var spurður um hjúkrunarheimilið, sem áður hafði verið rætt um að reisa, sagði hann að útlitið væri ekki gott. Ráðuneytið væri ekki jákvætt gagnvart því og önnur sveitarfélög væru í forgangi. Hann sagði enn fremur að sveitarfélögin á Suðurlandi hefðu samþykkt árið 2016 að framtíðaruppbygging fyrir eldri borgara á Suðurlandi yrði á Selfossi. Þó væri ekki öll von úti enn, áréttaði hann.

Félagsstarf eldra fólks

Sveitarfélagið gæti hins vegar sinnt öllu því sem sneri að félagsstarfi eldra fólks, dagþjónustu, mat, húsnæði og aðgengi að íþróttum. Þar mætti gera mun betur, sagði Elliði.

Hann lagði áherslu á að taka þyrfti tillit til þeirra sem nýttu dagþjónustuna á 9-unni og fólksins sem þar ætti heimili sín. Því væri lítið svigrúm fyrir félagsstarf eldri borgara í húsinu.

Félagsheimilið „Varðan“

Elliði Vignisson bæjarstjóri kynnir hugmynd að félagsheimili eldri borgara.

Á glæru var kynnt hugmynd um að nýta þann hluta áhaldahússins sem áður hýsti skrifstofur sveitarfélagsins fyrir starfsemi eldri borgara. Þar eru nú kaffistofa áhaldahússins og skrifstofa umhverfisstjóra. „Sálfræðingurinn og gervigreindin“, eins og Elliði orðaði það sjálfur, höfðu teiknað viðbyggingu við húsið.

Með viðbyggingunni yrði húsnæðið um 250 m² að stærð. Þar yrði félagsheimili eldri borgara. Elliði sýndi grunnmynd af því hvernig mætti nýta rýmið. Gert væri ráð fyrir 150 m² fjölnotasal sem rúmaði bocciavöll í löglegri stærð. Salinn mætti einnig nýta fyrir línudans, kórastarf og ýmislegt fleira. Eldri borgarar gætu sjálfir ákveðið hvaða starfsemi færi fram í húsinu.

Elliði sagði að ef eldri borgarar tækju ekki vel í hugmyndina yrði ekki unnið frekar með hana. Fundarmen

Hönnun eftir sálfræðinginn og gervigreindina.

n tóku hugmyndinni vel. Þeir klöppuðu saman lófunum, nokkur óp heyrðust í salnum og í einum gall: „Þetta er besta hugmynd sem þú hefur fengið lengi.“

Elliði sagðist búast við að farið yrði í framkvæmdirnar strax eftir áramót.

Stækkun matsalarins á 9-unni

Önnur hugmynd sem kynnt var sneri að stækkun matsalarins á 9-unni. Sálfræðingurinn og gervigreindin höfðu einnig teiknað þá stækkun og var hún sýnd á glæru. Tillagan fólst í að smíða gólf yfir gryfjuna, sem nýttist orðið mjög lítið. Matsalurinn væri ekki enn orðinn of lítill en gert væri ráð fyrir að stærra rými þyrfti innan fárra ára.

Frístundastyrkur

Úr salnum var spurt hvort sveitarfélagið hefði í hyggju að koma á frístundastyrk fyrir eldri borgara svo þeir gætu valið þá hreyfingu sem hentaði þeim best. Vísað var til annarra sveitarfélaga sem veittu slíkan styrk. Bæjarstjórinn ætlaði að koma hugmyndinni á framfæri við bæjarstjórn.

Elliði þakkaði fundarmönnum fyrir góða mætingu og gott hljóð og sagði gott að eiga svona samtal. Mér fannst liggja í loftinu að annar fundur yrði sennilega haldinn á vordögum.

Smá grín í lokin

Kona sem var tiltölulega nýflutt í sveitarfélagið kvaddi sér hljóðs. Hún sagði gott að búa hér, þótt hún hefði kvartað og kveinað yfir blokkinni sinni og verið óánægð með skipulagið. Henni fyndist félagsstarf eldri borgara gott og hún hefði reynt að taka þátt í öllu sem í boði væri. Hún nefndi þó að ekki væru margir eldri borgarar þar sem hún byggi.

Þá kallaði einn fundarmaður: „Það er laust herbergi hjá mér.“

 

Tengdar færslur