Konukvöld Félags eldri borgara í Ölfusi verður haldið á 9-unni föstudaginn 25. september 2026 kl. 18.00.
Í auglýsingu um kvöldið kemur fram að gaman væri að sjá sem flestar konur klæðast eða bera handverk sem þær sjálfar hafa gert.
Sirrý Ósk, sem situr í konukvöldsnefnd félagsins, sagði að hugmyndin hefði kviknað vegna þess að margar konur fást við fjölbreytt handverk. Sumar prjóna, hekla eða sauma út, aðrar sauma þjóðbúninga, búa til skargripi eða mála á striga og postulín, – svo fátt eitt sé nefnt.
Á Konukvöldinu verður tískusýning þar sem konur sýna meðal annars fatnað, prjónles og hekluverk. Einnig verður ýmiss konar handverk til sýnis á borðum. Konur eru hvattar til að koma með handverk sem þær hafa unnið og leyfa öðrum að njóta þess.
Sirrý ítrekaði að gaman væri ef konur klæddust eigin handverki eða handverki sem aðrir hefðu gert. Það væri þó alls engin skylda að mæta í einhverju handgerðu – hver og ein kæmi að sjálfsögðu eins og henni þætti best.
Fleira verður á dagskrá en tískusýning. Meðal annars mun Aðalbjörg og Ársæll leiða fjöldasöng.
Það er alltaf gaman að koma saman, borða góðan mat, syngja og gleðjast yfir lífinu.
