Almyrkvi í Herdísarvík – og konan sem missti af deildarmyrkvanum

Almyrkvi á sólu varð síðdegis 12. ágúst. Margir lögðu leið sína héðan úr Þorlákshöfn út í Selvog og í Herdísarvík til að upplifa þetta náttúruundur. Sú sem þetta ritar ákvað að fara í Selvoginn með sínum manni og varð staður skammt frá Herdísarvík fyrir valinu.

Þó nokkur mannfjöldi hafði safnast saman við Strandarkirkju og Herdísarvík. Konan steig út úr bílnum, horfði upp í himininn og virti þungbúið loftið fyrir sér. Það virtist vera borin von um að sjá hina margumtöluðu kórónu, en þó var ekki útilokað að sjá deildarmyrkvann, þegar tunglið hylur hluta sólarinnar.

Konan sneri sér í hringi og virti himininn gaumgæfilega fyrir sér. Hún sá regnboga í austri, tók mynd af honum og beindi síðan sjónum sínum í vestur þegar hún heyrði mann sinn hrópa:

„Þarna er sólin að birtast í gegnum skýjahuluna!“

Deildarmyrkvinn sást, en fór fram hjá konunni – hvernig það gat gerst getur hún ómögulega skilið.

Birtan tók að breytast og gaf umhverfinu dulúðlegan, silfurlitaðan blæ. Konan tók sér stöðu og beindi myndavélinni að birtunni. Hún ætlaði að ná almyrkvanum á myndband. Síðast þegar almyrkvi var á Íslandi var hún aðeins fjögurra ára og man lítið eftir honum.

Hún reyndi að halda myndavélinni stöðugri meðan hún tók upp. Klukkan var 17.45. Himinninn var farinn að dökkna og allt í einu skall myrkrið á. Svo, smátt og smátt, tók birtan að snúa aftur.

Þetta var tilkomumikil stund.

Upptakan er hins vegar ekki birtingarhæf, einfaldlega vegna þess að konan var í tilfinningalegu uppnámi. Hún heyrist hrópa upp yfir sig hvað eftir annað:

„Þetta er magnað, æðislegt, geggjað og stórkostlegt!“

Hún ákallaði Guð á nokkrum tungumálum, þó aðallega á íslensku og ensku.

Að lokum lögðu hún og maðurinn af stað heim á leið með ónotuð sólmyrkvagleraugu – fjögur í óopnuðum pakka. Hvað áttu þau nú að gera við öll þessi gleraugu?

Kannski ættu þau bara að fara til Spánar í ágúst á næsta ári og upplifa almyrkvann þar. Þá kæmu gleraugun sér sannarlega vel.

Það er aldrei að vita hvað konunni dettur í hug.

 

Similar Posts