Rökkurstund á Bæjarbókasafni Ölfuss

Rökkurstund Norrænu bókmenntavikunnar var haldin á Bæjarbókasafni Ölfuss miðvikudaginn 18. nóvember 2026. Norræna félagið í Ölfusi og Bæjarbókasafn Ölfuss stóðu saman að viðburðinum.

Norræna bókmenntavikan er á vegum Sambands norrænu félaganna og þar er lögð áhersla á að kynna norræna sagnalist. Á hverju ári er valið þema og lesnir upp valdir textar eftir norræna höfunda. Sömu textar eru lesnir á öllum Norðurlöndum og víðar. Markmiðið er að lýsa upp svartasta skammdegið með því að kveikja á kertum og lesa upp úr bók.

Þema bókmenntavikunnar árið 2026 var Lýðræði á Norðurlöndunum. Skipuleggjendur útskýrðu val sitt með þessum orðum. „Vegna núverandi heimsmyndar sem einkennist af stríði, óróleika og skautun í stjórnmálum ásamt ritskoðun höfum við valið þema sem endurspeglar gildi á borð við frelsi, jafnrétti og sanngirni.“

Venjulega er lesið á tveimur stundum, Rökkurstund fyrir fullorðna og Morgunstund fyrir börn og ungmenni. Að þessu sinni var stundunum slegið saman á bókasafninu.

Árný Leifsdóttir las upp úr bókinni Kepler62: Kallið eftir Timo Parvela og Bjørn Sortland. Pasi Pitkänen

myndskreytti bókina. Guðrún Sigríks Sigurðardóttir las upp úr bókinni Staðreyndir eftir Hauk Má Helgason. Báðar bækurnar tengdust þema vikunnar.

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir las upp úr nýútkominni bók sinni, Heim er…, sem er sjálfsævi- og þroskasaga.

Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga léku fyrir gesti á píanó ásamt kennara sínum, Gesti Áskelssyni.

Árný Leifsdóttir, forstöðumaður Bæjarbókasafns Ölfuss, og Sigríður Guðnadóttir, formaður Norræna félagsins í Ölfusi, þakka gestum fyrir komuna og öllum sem lögðu sitt af mörkum til að gera stundina bæði skemmtilega og notalega.

Árný Leifsdóttir.
Guðrún Sigríks Sigurðardóttir.
Guðrún SIgríks Sigurðardóttir.
Elín Íris Fanndal Jónasdóttir.

Tengdar færslur