1. grein. Síung leitast við að vera heiðarleg og trúverðug, segja satt og rétt frá því sem fjallað er um á vefnum eftir bestu vitund og vandar framsetningu.

Rökstuðningur: Það liggur eiginlega í augum uppi að það þarf að vera heiðarlegur þegar fjallað er um menn og málefni á netinu eins og í ræðu og riti. Það er nauðsynlegt að vanda framsetningu og frásögn og alltaf að hafa það sem sannara reynist. Það er auðvelt að tapa trúverðugleikanum ef þetta er ekki haft að leiðarljósi.

2.  grein. Síung fer ekki í manngreinarálit.

Rökstuðningur: Það fá allir að láta skoðanir sínar í ljós en það verður að sýna tillitsemi við samborgara sína. Meiðandi orð sem ekki eiga við rök að styðjast eru ekki aftur tekin og geta lifað lengi á vefnum.

3. grein. Síung gætir þess að bera virðingu fyrir viðmælendum sínum og talar ekki niður til þeirra.

Rökstuðningur: Rannsóknir sýna að eldra fólk finnur oft fyrir fordómum og skorti á virðingu.

4. grein. Síung hefur það að leiðarljósi að það er manneskjan sem hún hefur áhuga á en ekki aldurinn.

Rökstuðningur: Í nútímasamfélagi er aldur afstæður. Þeir sem hafa náð lögbundnum aldri, eins og það er kallað, hafa fulla starfsorku og kjósa að halda áfram að starfa ef þess er kostur eða taka sér eitthvað annað fyrir hendur, stofna jafnvel lítið fyrirtæki, fara í nám, gæta barnabarnanna, taka þátt í félagslegu starfi og láta drauma sína rætast með einum eða öðrum hætti.

5. grein. Síung gætir þess að skilmáli viðtals sé skýr og slítur það ekki úr samhengi. Viðmælandi fær að lesa það yfir áður en það er birt.

Rökstuðningur: Það er sjálfsagt að láta viðmælanda lesa yfir viðtal eða hlusta á það ef það er hljóðritað. Skilmálarnir þurfa að vera skýrir og að ekki sé hægt að breyta ummælum eða frásögn eftir á.

6. grein. Síung gætir þess að geta heimilda ef efni er tekið af neti eða vitnað er í ritaðar greinar og annan fróðleik.

Rökstuðningur: Það er sjálfsögð kurteisi að spyrja fólk að því hvort það sé í lagi þeirra vegna  að birta myndir af því á vefnum ef þess er kostur. Það má ekki taka efni né myndir af neti nema að biðja höfunda leyfis en það er þó undantekningar á en þá er myndirnar merktar þannig. Það má aftur á móti nota texta og myndir af öðrum vefsíðum á svipaðan hátt og gert er með heimildir í ritgerðum þ.e. að segja hvaðan efnið er fengið og merkja það höfundi. Á sumum vefsíðum stendur að leyfilegt sé að nota allt efni síðunnar.

Ritstjóri