Vetrarstarfið að hefjast hjá Tónum og Trix
Aðalfundur Tóna og Trix verður haldinn föstudaginn 7. október kl. 10.00 á Níunni, þar sem reikningar og vetrarstarf verður rætt. Stefnt er að því að hefja söngæfingar föstudaginn 14. október kl. 10.00 sem verður æfingardagur Tóna og Trix í vetur. Þessi gefandi og glaðlegi félagsskapur óskar svo sannarlega eftir fólki sem hefur gaman að því...
