Loading Events

« All Events

Allt á grillið og harmóníkuball á 9-unni

ágúst 6 @ 18:00 - 21:00

Hamingjan við hafið – dagskrá fyrir eldri borgara

Á fimmtudaginn 6. ágúst er dagskrá á 9-unni sem er sérstaklega ætluð eldri borgurum.
Kl. 18.00 verður „Allt á grillið“. Hver og einn kemur með það sem hann vill setja á grillið og það sem hann kýs að hafa með matnum. Félag eldri borgara býður upp á sölu á léttu víni og bjór.
Kl. 19.00 hefst síðan hið vinsæla harmóníkuball, þar sem Danssveit Úlfars Sigmarssonar leikur fyrir dansi til kl. 21.00.
Við hvetjum alla eldri borgara til að koma og eiga notalega kvöldstund saman. Tökum þátt í hátíðinni, hittum góða vini, grillum saman og dönsum við ljúfa harmoníkutóna.

Details

  • Date: ágúst 6
  • Time:
    18:00 - 21:00