Dagbók úr Færeyjaferð 2006
Fimmtudagsmorguninn 22. júní 2006 lögðum við upp í ævintýraferð til Færeyja, fjörutíu manns að bílstjóranum meðtöldum. Eftirvænting skein úr andlitum ferðalanganna: flestir voru að fara til Færeyja í fyrsta sinn og nokkrir í sína fyrstu utanlandsferð. Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis, stóð fyrir ferðinni og skipulagði hana í samvinnu við Svein Sigurbjarnarson frá Eskifirði, bílstjórann okkar.
Félagarnir, Sveinn og Aðalsteinn, styttu okkur stundir með ýmsum fróðleik á ferðum okkar. Sveinn studdist við skráðar heimildir. Aðalsteinn lét okkur ýmsan fróðleik í té sem hann sagði vera „lauslega þýddan.“ Skáldið okkar í ferðinni, Ingólfur Jónsson bóndi á Mörk í Kelduhverfi, orti þessa vísu:
Með okkur er sögusveinn
sem að leiðir velur.
Orkuboltinn Aðalsteinn
alla sauði telur.
Áður en ég segi frá ferðinni dag frá degi langar mig að draga upp mynd af eyjunum eins og þær komu okkur fyrir sjónir þessa júnídaga árið 2006.

Færeyjar eru átján talsins og allar byggðar nema sú minnsta, Litli-Dímon. Íbúarnir eru um 49 þúsund, þar af nærri 19 þúsund í höfuðstaðnum, Þórshöfn. Fólkið sem við hittum var afslappað, gestrisið og vingjarnlegt.
Miklar andstæður eru í landslaginu, dalir og þverhnípt fjöll, ekki ósvipað og á Vestfjörðum, nema hér nær græni liturinn alla leið upp á fjallstoppa. Byggðin stendur nær alls staðar við sjó, í þyrpingum eða hverfum. Lítið er um stakar bújarðir. Húsin eru yfirleitt úr timbri, máluð í sterkum litum, og svarti liturinn er áberandi.
Vegakerfið í Færeyjum er gott. Vegirnir eru allir malbikaðir og samtals um 600–700 km að lengd. Við ókum alls 820 km í ferðinni og fórum um mörg jarðgöng, bæði í gegnum fjöll og tvenn undir sjó. Samanlögð lengd jarðganganna er um 90 km. Eldri göngin eru óupplýst en þau nýjustu vel lýst.

Alls staðar sem við ókum sáum við kindur: í vegköntum og upp um öll fjöll, en nálægt byggð voru þær yfirleitt í afgirtum hólfum. Um 70 þúsund fjár eru í eyjunum. Ekki var óalgengt að sjá eina eða tvær kindur í görðum fólks og við veltum því fyrir okkur hvort þetta væru garðsláttuvélar á fjórum fótum. Auk kindanna sáum við tvo héra á hlaupum. Það vakti líka athygli okkar að ekkert sláturhús er í Færeyjum; þar tíðkast heimaslátrun við misjafnar aðstæður.
Húsagarðarnir voru afar fallegir og snyrtilegir, prýddir runnum og fjölærum jurtum.
Fótbolti er aðalíþrótt Færeyinga og víða sáum við glæsilega fótboltavelli með gervigrasi.
Við vorum einstaklega heppin með veður og hefur það mikið að segja þegar eyjarnar eru skoðaðar. Færeyskt máltæki segir: „Ef þú ert óánægður með veðrið, bíddu þá í fimm mínútur.“ Þetta máltæki mætti líka heimfæra upp á íslenska veðráttu. Veðurfarið er enda mjög svipað því sem við þekkjum hér á landi, nema veturnir eru mildari í Færeyjum.
Færeyingar eru sjálfstæð þjóð innan danska ríkisins, með eigið mál og fána. Þeir eru alltaf að öðlast meira sjálfstæði.
23. júní, föstudagur
Við komum til Þórshafnar snemma morguns eftir sautján tíma siglingu með Norrænu. Mönnum kom saman
um að hún væri afbragðs sjóskip. Þar sem við vorum komin fyrir allar aldir ákváðum við að fara í sund, en laugin opnaði ekki fyrr en klukkan sjö. Við nýttum biðina til að ganga um bæinn og bryggjurnar og skoða báta og gömul hús.
Sundlaugin var innandyra og með stökkbrettum. Þar reyndu nokkrir að sýna listir sínar með misjöfnum árangri. Að sundsprettinum loknum settumst við á kaffihús við laugina. Þar sötruðum við kaffi og borðuðum nýbökuð rúnstykki á meðan við virtum fyrir okkur sundlag fólks í gegnum gluggann milli kaffihússins og laugarinnar.

Sæl og mett fórum við til Kirkjuböar, eða Kirkjubæjar, á Straumey, 13 km frá Þórshöfn. Þetta er forn og sögufrægur staður. Þar stendur Ólafskirkja, frá því um 1100, helguð Ólafi helga Noregskonungi. Hún er elsta kirkjan í Færeyjum sem enn er í notkun.
Við breytingar árið 1874 missti hún hið upprunalega útlit. Árið 1966 var henni aftur breytt, nú til að færa hana í sem upprunalegast horf. Meðal þess sem fjarlægt var úr kirkjunni voru fjórtán forláta kirkjubekkir með fagurlega útskornum göflum. Bekkirnir eru nú til sýnis á fornminjasafninu í Þórshöfn, sem við heimsóttum síðasta daginn okkar í Færeyjum.
Á Kirkjubæ hefur sama ættin ríkt í sautján ættliði. Þar býr nú Sverrir Paturson, en langamma hans, Guðný Eiríksdóttir, var ættuð frá Reyðarfirði. Sverrir dvaldi á Íslandi í nokkur ár, nam búfræði á Hvanneyri og vann á Akranesi. Hann er vinur Sveins bílstjóra og kom til að heilsa upp á hópinn og segja okkur skemmtilegar sögur frá Íslandsárunum.
Sverrir var fyrsti Færeyingurinn sem við hittum í ferðinni sem hafði stundað nám og starfað á Íslandi, en alls ekki sá síðasti. Í nær öllum bæjum hittum við Færeyinga sem höfðu starfað þar.
Það veit enginn framtíð,
þó veðrið sé gott,
því vildi ég um þetta rita,
því Hafdís er indæl
með hnakka svo flott,
ég hef hana sem áttavita.
Ingólfur sat fyrir aftan Hafdísi Halls í rútunni. Ef hún var ekki sest áður en hann kom í rútuna varð hann alveg áttavilltur og fann ekki sætið sitt.
Fyrstu þrjár næturnar gistum við á Hótel Runavík (Sjómansheimilið) í Runavík á Austurey. Vegna plássleysis á hótelinu fengu nokkrir íbúðarhús til umráða sem kallað var „dánarbúið“. Nafnið hafði þó ekkert með þá að gera sem þar dvöldu! Þar gátum við sungið og trallað, enda var gott söngfólk í hópnum.
Runavík er lítill bær með rétt um fimm hundruð íbúa. Þar er ein aðalgata með mörgum verslunum. Kaffihús fundum við hins vegar ekkert, hversu mikið sem við leituðum.
Næstu daga voru farnar skoðunarferðir vítt og breitt um eyjarnar: Suðurey, Austurey, Borðey, Konuey, Straumey og Vága.
24. júní, laugardagur

Ferðin á Suðurey var ógleymanleg fyrir þær sakir að okkur var óvænt boðið heim til Ingeborgar Vinther, fremsta verkalýðsforingja Færeyinga. Hún býr sem sagt í Vogum á Suðurey en starfar í Þórshöfn. Það er tveggja tíma sigling með ferju á milli þessara staða. Ingeborg er góð vinkona Aðalsteins, formanns VH, en þau þekkjast í gegnum norrænt samstarf. Krásir voru bornar fram þar til borðið svignaði undan svínakjöti, skerpukjöti, rækjum, lifrarpylsu, áleggi, brauði, eftirrétti, kaffi, öli og víni. Fólk fór í stríðum straumum inn í búrið hjá Ingeborgu til að sjá skerpukjötið sem hékk þar, tvö læri af veturgömlum hrútum.

Þessa helgi var Jónsmessuhátíð í Vogum á Suðurey. Við horfðum á mikla róðrarkeppni sem þar fór fram. Fólk frá flestum bæjum tók þátt í keppninni. Róður er vinsælasta íþróttin í Færeyjum á eftir fótbolta. Á þessari hátíð opna íbúar heimili sín upp á gátt fyrir gestum og gangandi, bjóða upp á kaffi og kökur eða aðra hressingu.
25. júní, sunnudagur
Þennan dag heimsóttum við meðal annars tvær Norðureyjanna, Borðey og Konuey. Frá Leirvík til Klaksvíkur á Borðey ókum við um nýopnuð göng undir sjó. Þau eru 6–7 km löng, svipuð að lengd og Hvalfjarðargöngin. Uppgröfturinn úr göngunum var nýttur til
landfyllingar. Okkur var sagt að land væri af skornum skammti í Færeyjum og því mikils virði. Færeyingar væru því tregir til að selja landskika.
Klaksvík er afskaplega fallegur hafnarbær og næststærsti bær í Færeyjum, með um 4.500 íbúa. Þar skoðuðum við merka kirkju, Christianskirkju, teiknaða af Peter Koch. Kirkjan var byggð utan um risastóra altaristöflu eftir Joakim Skovgaard. Altaristaflan átti upphaflega að vera í dómkirkjunni í Viborg í Danmörku.
Á Konuey heimsóttum við samnefndan bæ með 60 íbúum. Þessi gamli bær er ótrúlega sjarmerandi og stendur undir fjórum fjöllum með hamrabeltum.
Til að komast þangað ókum við í gegnum einbreið göng þar sem þeir sem komu á móti áttu að víkja. Þarna á Konuey féll ég fyrir Færeyjum. Fegurðin og kyrrðin voru svo mikil, og nú sáum við loks fjallstoppana sem höfðu falið sig í þoku dagana áður. Fjöllin gengu þverhnípt, næstum lóðrétt, niður í sjó. Græni liturinn sem einkennir Færeyjar náði alveg upp á fjallstoppana. Þarna upplifði ég hann svo sterkt.
Á Austurey skoðuðum við helstu bæi, meðal annars Leirvík með um 865 íbúa og Fuglafjörð með um 1500 íbúa. Í Leirvík skoðuðum við gervigrasvöll og ókum fram hjá sorpeyðingarstöð og hausaþurrkunarstöð í eigu Samherja.
Til Fuglafjarðar hafa húsvískir sjómenn löngum siglt, en þar er eina loðnubræðslan í Færeyjum. Enginn reykur
sést frá verksmiðjunni, því hann er leiddur í 1,5 km löngum göngum út í sundið. Þar höfðu menn líka búið til frystiskáp inni í berginu, sem vakti athygli okkar. Vegna plássleysis þurfa Færeyingar að sýna mikla útsjónarsemi.

Stefnan var tekin á Gjógv, eða Gjána, fallegt sveitaþorp með um 50 íbúa þar sem Dalsáin rennur í gegnum byggðina. Þorpið dregur nafn sitt af gjá sem gengur inn í landið frá opnu hafi. Gjáin er engin smásmíði: löng, breið og djúp, með litfögrum og grónum bökkum. Náttúrufegurðin er mikil og útsýnið fallegt. Gjáin hefur verið notuð sem höfn og innst í henni er bátauppsátur. Hún er sögð góð bátahöfn, en það hefur sjálfsagt ekki verið á færi allra að taka þar lendingu í slæmu veðri.
Til að koma okkur upp í Gjáargarðinn, þar sem við ætluðum að drekka kaffi, fór Sveinn með okkur í gegnum

þröngar og hlykkjóttar götur á „Drottningunni“ sinni. Það hefði ekki verið á færi allra að komast klakklaust í gegnum þessa þraut. Maður átti alveg eins von á að lenda inn á miðju stofugólfinu í einhverju húsanna. Ferðamenn horfðu undrandi á rútuna mjakast fram og aftur og liðast í gegnum húsaþyrpinguna og upp fjallshlíðina að farfuglaheimilinu, þar sem beið okkar kaffi og kökur.
Frá Gjánni fórum við yfir hæsta fjallveg Færeyja við Slættaratind, sem er 882 m hár. Síðan ókum við að Eiðiskolli og virtum fyrir okkur Risann og Kellinguna, um 75 m háa klettadranga úti í sjó sem horfa í átt til Íslands. Þegar búið var að mynda náttúruundrin var komið að því að ná mynd af hópnum góða. Ein í hópnum vildi kalla hann „Kúta-grúpp“, í höfuðið á fararstjóranum.
Henni var eitthvað brátt í brók,
brá sér ekki úr fatinu,
en í æsing konan endurtók:
„ekki fara úr gatinu!“
Sveinn bílstjóri tók að sér að mynda hópinn og til að ná öllum á mynd stóð hann í dyrum á rútunni. Steinfríður frá Þórshöfn vildi ólm, ásamt fleirum, fá mynd af hópnum og hrópaði: „Bíddu, stattu í gatinu“ og hljóp með myndavélina til hans.
26. júní, mánudagur

Við kvöddum Runavík, fórum smá hring um nesið og héldum til Tóftar, þar sem búa um 800 manns, til að skoða íþróttamannvirkin. Þar er stór fótboltavöllur með miklum áhorfendapöllum, byggður fyrir landsleik árið 1992. Hann er einn af þremur grasvöllum í Færeyjum og var á fjárlögum Tóftar í 19 ár. Við hliðina er annar fótboltavöllur með gervigrasi, ásamt íþróttavelli og hlaupabrautum.
Á leið okkar til Tjörnuvíkur stönsuðum við tvisvar. Í annað skiptið stönsuðum við til að skoða Fossá, hæsta foss Færeyja, og í hitt skiptið til að tala við bónda sem stóð upp á torfþaki og sló með orfi og ljá. Annar bóndinn í ferðinni, Tryggvi á Þverá í Reykjahverfi, stökk til bóndans og sýndi honum hvernig bændur gera á Íslandi. Ég gat ekki séð teljandi mun enda er ég viðvaningur í þessum efnum. Bóndinn hafði unnið í Grindavík í fimm ár og sagði að á Íslandi væri gott að vera. Teknar voru myndir af bændunum og voru þeir sláandi líkir!
Nú sáum við Risann og Kellinguna frá öðru sjónarhorni, þegar við ókum til Tjörnuvíkur sem er nyrst á Straumey. Þorpið með um 70 íbúa stendur við litla vík með sandfjöru inn í firðinum og snýr beint í norður á móti opnu hafi, þar sem Risinn og Kellingin blasa við. Þorpið er sjarmerandi og umkringt fjöllum á þrjá vegu. Ekki sést til sólar í 18 vikur á ári. Húsin standa þétt saman og göturnar eru þröngar. Vegarsamband við staðinn komst ekki á fyrr en 1967. Þarna er að finna fornminjar frá víkingatímabilinu.
En nútíminn var ekki langt undan. Karlmaður að hengja þvott út á snúru vakti athygli margra í hópnum, þannig að ástæða þótti til að taka myndir af fyrirbærinu! Þessi furðufugl hafði unnið á Íslandi. Hann hætti til sjós og gerðist bóndi og sagði að það væri gott að vera bóndi í Færeyjum.
Nú var brunað til Þórshafnar í hádegisverðarboð hjá Færeyska verkalýðsfélaginu. Ingeborg Vinther tók á móti okkur ásamt félögum sínum. Að hætti Færeyinga svignuðu borðin undan smurðu brauði og öðru góðgæti. Ingeborg fór stuttlega yfir starfsemina en þar kom fram að hún hefði lengi starfað að verkalýðsmálum og jafnframt setið á þingi. Þetta er afskaplega elskuleg kona og blátt áfram.
Þarna sátum við í tvo tíma í góðu yfirlæti og nutum gestrisni frændaþjóðar okkar. Aðalsteinn þakkaði fyrir móttökurnar og færði Ingeborgu og félögum gjafir.
Síðasti áfangastaður dagsins var eyjan Vágar, þar sem flugvöllurinn er. Þar fórum við í Gásadal, einn afskekktasta stað Færeyja þar til fyrir þremur árum, þegar lítil og þröng göng voru opnuð þangað. Í Gásadal búa sjö manns. Áður en göngin voru opnuð þurftu íbúarnir að ganga yfir fjallið til að draga björg í bú. Gangan upp tók klukkutíma en hálftíma niður.
Náttúrufegurðin í Gásadal er mikil og það er mjög sérkennilegt að koma þangað. Aðalsteinn hitti háaldraðan mann sem bauð honum inn í lítið og þröngt hús til að fræða hann um staðinn. Maðurinn sýndi Aðalsteini hvar farið var yfir fjallið og sagði að lífið væri allt annað síðan göngin komu! Og enn kvað Ingólfur, að þessu sinni til bílstjórans okkar:
Sigurbjarnar sonur er
sómi lands og þjóða,
ferðir allar þökkum þér
Þær voru afbragðs góðar.
27. júní, þriðjudagur
Kvöldið áður höfðum við skráð okkur inn á Hótel Færeyja. Nokkrir útvaldir gistu þó á farfuglaheimili við hliðina, sem við kölluðum „Valhöll“.
Ég hlakkaði til að fara til Saksunar á Straumey um morguninn því ég hafði séð mörg falleg póstkort með myndum þaðan. Saksun er afar sérkennileg lítil byggð sem liggur þröngt á milli fjalla. Þar er byggðasafnið Dúvagarður, bóndabær og kirkja. Því miður var safnið lokað. Í Saksun var stærstur hluti kvikmyndarinnar „Barbara“ eftir danska leikstjórann Niels Malmros tekinn.
„Barbara“ var gerð eftir sögu færeyska rithöfundarins Jörgen Frantz Jakobsens. Kvikmyndin „Dansinn“ eftir Ágúst Guðmundsson var einnig tekin í Saksun og er byggð á smásögunni „Her skal danses“ eftir William Heinesen.
Frá Saksun lá leiðin í Norðurlandahúsið, þar sem við fengum okkur léttan hádegisverð. Þetta er hið fallegasta hús. Síðar um daginn gafst okkur tækifæri til að skoða Saksun af sjó.
Sjóferðin um Vestmannabjörgin var sennilega ein eftirminnilegasta ferðin okkar. Við tókum bátinn í Vestmanna, bæ með um 1.200 íbúa, og siglingin tók um þrjá tíma. Við sigldum meðfram háum fuglabjörgum og inn í skúta og gjár. Þar nýttum við hvert tækifæri til að syngja og prófa hinn náttúrulega hljómburð. Það þótti við hæfi að taka „Hamraborgina“ og bassinn í hópnum okkar var best fallinn til að syngja hana.
Í einu bjarginu sáum við nokkrar kindur á beit. Við veltum því fyrir okkur hvernig í ósköpunum þær kæmust þangað. Skýringin var á næsta leiti. Eigandi bátsins, fullorðinn maður, sagði okkur að kindunum væri komið fyrir þarna og sýndi okkur leiðina sem gengið væri með þær upp. Þær væru síðan sóttar í september og þeim slátrað. Kjötið væri látið hanga fram í desember og þá borðað. Þetta væri gert bæði sportsins vegna og bragðsins, því beitin þarna í bjarginu væri sérstaklega góð.
Um kvöldið snæddum við síðustu kvöldmáltíð ferðarinnar á Marco Polo, þar sem við borðuðum nú í annað sinn. Margir fengu sér hjartarkjöt sem smakkaðist afbragðsvel.
Í nokkrum ræðum var þeim félögum, Aðalsteini og Sveini, þakkað fyrir ferðina, enda höfðu þeir staðið sig með mikilli prýði. Sveinn hlýtur að vera bílstjóri Íslands, svo flinkur, fróður og lipur er hann. Aðalsteinn hélt stemningunni uppi með líflegri og bráðskemmtilegri fararstjórn og lét sér mjög annt um ferðafélagana. Allt gekk upp og andinn í ferðinni einkenndist af hlýju, gleði og þakklæti.
Steingerður er stillt, en hvað,
strax ég henni unni,
en aldrei fellur óhugsað
orð af hennar munni.
Steingerður Gísladóttir, sem lék á alsoddi, var borðdama Ingólfs. Hann var elsti þátttakandinn en hún yngst.
28. júní, miðvikudagur
Síðasta daginn skoðuðum við okkur um í Þórshöfn, heimsóttum fornminjasafnið „Föroya Fornminnissavn“ sem er heimsóknarinnar virði og skoðuðum í búðir. Við lögðum af stað frá Þórshöfn klukkan 18:00 í blíðskaparveðri. Enn einu sinni fengum við að skoða náttúruundrið, Vestmannbjörgin, á leið okkar út á haf.
Aðskotahlutur af gamalli gerð.
gæðastjórar ei sviku,
það var nú afrek í þessari ferð
að þola mig heila viku.
Þessa vísu orti Ingólfur í lok ferðar, en hann kom sífellt á óvart með kveðskap sínum, hæversku, húmor, sönggleði og dansfimi.

Ég var svo heppin að eiga þess kost að fara í þessa skemmtilegu ferð með dóttur minni og móður, Steingerði yngri og Steingerði eldri.
Í upphafi þekkti ég engin nöfn á farþegalistanum nema okkar þriggja og fararstjórans. En þegar ferðin hófst fengu nöfnin andlit, ég fór að tengja fólk saman og listinn tók að dansa af lífi og fjöri.
Þegar ég spurðist fyrir um ferðafélagana kom í ljós að þarna voru meðal annars aflakóngar, garðáhugafólk, bifvélavirki á hjólum, bóndi sem hafði keppt í frjálsum íþróttum á yngri árum og Danir sem höfðu ákveðið að setjast að á Húsavík. Þarna var líka að finna söngfólk, hagyrðing, dansara og brandarakalla. „Engin ferð er betri en fólkið sem í henni er.“
Takk fyrir mig.
Sigríður Guðnadóttir
