Velheppnað vinabæjamót

Þátttakendur í vinabæjarmótinu stilla sér upp fyrir myndatöku fyrir framan Versali fyrir hátíðarkvöldverðinn.
Nýafstaðið vinabæjamót Norræna félagsins í Ölfusi, í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus, sem haldið var dagana 1.–5. júlí 2026, heppnaðist einstaklega vel. Þátttakendur komu frá Vimmerby í Svíþjóð og Kauhava í Finnlandi. Fulltrúi bæjarstjórnar Kauhava, Vesa Rantala, kom til að kynna sér framkvæmd vinabæjamótsins og jafnframt til að bjóða formlega til næsta vinabæjamóts sem fyrirhugað er að haldið verði í Kauhava árið 2028.

Vinabæirnir Rygge í Noregi og Skærbæk í Danmörku tóku því miður ekki þátt að þessu sinni af ýmsum ástæðum.

Vinabæjamótin eru mikilvægur vettvangur þar sem fólk hittist, deilir reynslu, kynnist menningu og samfélögum Norðurlandanna, styrkir vináttubönd sem hafa byggst upp í gegnum árin og myndar ný.

Gestirnir komu síðdegis á miðvikudegi og voru boðnir hjartanlega velkomnir við móttöku í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Þar var boðið upp á íslenska kjötsúpu og pönnukökur.

Malin Ahnell leikur á flygilinn í Þorlákskirkju
Malin Ahnell leikur sænskt lag á flygilinn í Þorlákskirkju
Móttaka og heimsókn í Þorlákskirkju

Dagskráin hófst með móttöku Sveitarfélagsins Ölfuss í Versölum. Þá var farið í Þorlákskirkju þar sem gestir fengu að skoða kirkjuna og njóta tónleikaflutnings.

Ester Ólafsdóttir organisti og Daði Þór Einarsson básúnuleikari léku fyrir gesti á orgel og básúnu „Kvöldsiglingu“ eftir Gísla Helgason og hið þekkta sænska lag „Vem kan segla förutan vind“. Í hópi Svía var tónlistarkonan Malin Ahnell sem settist við flygilinn og lék sænskt lag. Svíarnir tóku síðan undir með fallegum söng.

Malin og Daði Þór áttu eftir að spila oftar saman á meðan á mótinu stóð. Það var einmitt tónlistin sem varð einn af þeim fallegu þráðum sem tengdi þátttakendur saman.

Mótsgestum var boðið í skoðunarferð um Ölfusið og þeim sýnd sú mikla þróun og uppbygging sem átt hefur sér stað undanfarin ár í sveitarfélaginu. Tvö öflug fyrirtæki voru heimsótt; First Water, sem stundar landeldi á laxi, og Vaxa Technologies á Hellisheiði, þar sem framleiðsla á smáþörungum fer fram.

Eftir rútuferðina var farið í Íþróttamiðstöðina og gestum boðið að fara í sund.

Dagur sveitarfélagsins, eins og þessi dagur var nefndur í dagskránni, lauk með glæsilegu borðhaldi á Hafinu bláa.

Ógleymanleg upplifun á Hafinu Blá í mat, tónlist og kvöldbirtu.
Auk góðs matar og fallegra tóna frá djassleikurum var það kvöldbirtan sem heillaði gestina hvað mest. Hún flæddi inn um glugga veitingastaðarins og speglaðist annars vegar í hafinu og hins vegar í Ölfusá, vatnsmestu á landsins. Þetta einstaka útsýni varð fljótt vinsælt myndefni meðal þátttakenda.

Vinalundur – tákn vináttu og tengsla

Það var falleg og táknræn stund þegar þátttakendur vinabæjamótsins gróðursettu fimm reynitré í nýútbúnum vinalundi í gróðurreit Norræna félagsins í Ölfusi, innan við Skýjaborgir. Trén fimm standa sem tákn fyrir vinabæina fimm og þau munu vaxa og dafna líkt og sú vinátta og samvinna sem hefur myndast á milli þeirra í gegnum árin.

Sigríður Guðnadóttir gróðursetti tré fyrir hönd Þorlákshafnar, Ann-Britt Frost fyrir hönd Vimmerby og Vesa Rantala fyrir hönd Kauhava. Fyrir hönd Rygge og Skærbæk gróðursettu þær Jeanette Krusell og Gunnilla Berg.

Sigga, Ann-Britt, Vesa, Jeanette og Gunnella við Vinabæjarlundinn.
Vinalundurinn verður þannig varanleg minning um vinabæjasamstarfið og þau tengsl sem hafa myndast milli fólks frá þessum fimm norrænu samfélögum.

Menningarperlur og náttúruupplifanir á Suðurland

Næstu tveir dagar voru nýttir til að sýna gestum fallegar náttúruperlur og menningarstaði á Suðurlandi. Hannes Hjartarson var leiðsögumaður í rútuferðunum og miðlaði af mikilli þekkingu sinni á svæðinu.
Fyrri daginn var farið í Skálholtsdómkirkju. Þar fengu gestir leiðsögn um kirkjuna og smjörþefinn af tónlistarmenningu staðarins, þar sem Kammersveitin Elja var að æfa fyrir Sumartónleikana í Skálholti. Síðan lá leiðin í Vínstofu Friðheima, Gullfoss og Geysi.

Daginn eftir var farið á Þingvöll og að Hakinu. Þar fengu gestir fræðslu um jarðsögu staðarins og nutu stórkostlegs útsýnis yfir Þingvallavatn. Veðrið lék við hópinn og fjallstopparnir allt í kring voru baðaðir sólargeislum.

Leiðsögumaðurinn gekk með hópnum niður Almannagjá að Lögbergi. Þar blés Daði Þór í lúðurinn „Öxar við ána“ og fólk tók undir í söng sem hljómaði um vellina alla. Hópurinn naut þess að vera staddur á einum merkasta stað þjóðarinnar, þar sem náttúran sjálf myndar einstakan og glæsilegan+ hljómburð.

Í Þingvallakirkju settist Malin við orgelið og lék „Fögur er foldin“. Íslendingar og Svíar sameinuðust í söng og sungu hvorir á sínu móðurmáli.


Hátíðarkvöldverður

Hátíðarkvöldverðurinn hófst með fordrykk og myndasýningu frá fyrri vinabæjamótum. Heiðursgestir kvöldsins voru annars vegar Grétar Ingi Erlendsson, fulltrúi sveitarfélagsins, og hins vegar Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður sem situr í Vestnorræna ráðinu. Hún sagði frá starfsemi ráðsins.

Formenn Norrænu félaganna í Vimmerby og Þorlákshöfn, Ann-Britt Frost og Sigríður Guðnadóttir, fluttu ræður. Hefð er fyrir því að syngja þjóðsöngva landanna á vinabæjamótum. Að þessu sinni var hins vegar leikið undir á píanó og básúnu.

Svíar fluttu fallega söngva úr verkum Astrid Lindgren, enda er Vimmerby fæðingarstaður hennar.

Ann-Britt fer á kostum sem Lína langsokkur.
Aðalbjörg Halldórsdóttir og Ársæll Guðmundsson fluttu síðan nokkur ljúf lög sem vöktu mikla ánægju meðal gesta.

Hófinu lauk á fallegan hátt þegar allir gestir röðuðu sér í hring, tóku saman höndum og sungu „Hin gömlu kynni gleymast ei“, fyrst á sænsku og síðan á íslensku.
Í þakkarræðu fyrir hönd gesta frá Vimmerby þakkaði Leif Larsson, bæjarfulltrúi í Vimmerby, fyrir frábærar móttökur og glæsilega framkvæmd mótsins. Hann sagði að dagskráin hefði verið bæði fjölbreytt og vel skipulögð.

Hann lýsti jafnframt aðdáun sinni á þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Ölfusi frá því hann kom síðast á vinabæjamót hér árið 2017, bæði hvað varðar íbúðaruppbyggingu og atvinnulíf. Heimsóknirnar í fyrirtækin hefðu verið sérlega áhugaverðar.
Leif lagði sérstaka áherslu á mikilvægi vinabæjamótanna í samstarfi vinabæjanna. Þar gefst fólki tækifæri til að kynnast, rækta vináttuna og byggja upp traust tengsl sem styrkjast með árunum.

Vináttubönd styrkjast

Á þessum fimm dögum einkenndist samveran af gleði, tónlist, söng, náttúruupplifun, góðum mat og líflegum samræðum. Allt þetta átti þátt í að styrkja þau vináttubönd sem hafa byggst upp í gegnum árin og jafnframt mynduðust ný vináttubönd.

Þakkir

Stjórnin tekur við gjöfum frá gestunum. Sesselju vantar á myndina.
Norræna félagið í Ölfusi vill færa öllum þeim sem lögðu hönd á plóg innilegar þakkir. Sérstakar þakkir fá Sveitarfélagið Ölfus, fyrirtæki og stofnanir sem tóku á móti gestunum, listafólkið sem auðgaði dagskrána með tónlist og söng og allir þeir sjálfboðaliðar sem lögðu fram ótal vinnustundir við undirbúning og framkvæmd mótsins.

Það er dýrmætt að eiga svona frábæra félaga í Norræna félaginu í Ölfusi sem eru alltaf boðnir og búnir þegar eftir því er leitað. Án þeirra hefði ekki verið hægt að halda jafn glæsilegt vinabæjamót.

Vináttan sem verður til á vinabæjamótum lifir áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.

Þátttakendur frá Vimmerby á vinabæjamóti Norræna félagsins í Ölfusi 2026.